Jćja!!

Hahahaha... tölvusnillinn hún Gunnhildur var fyrst núna að fatta að það er hægt að setja inn íslenska stafi á þessa amerísku tölvu mína.. hahaha... jæja.. héðan í frá verða bloggin mín kannski skiljanlegri!!;)
En jæja.. gleymum því hversu heimsk ég er...

Á mánudaginn fór ég að passa litla gullmolann hann Emil Örn. Hann er án efa yndislegasta og medfærilegasta barn sem ég hef á ævi minni hitt! Hann brosir og hlær þrátt fyrir að vera dauðþreyttur, en sofnar svo um leið og maður labbar þrjú skref med hann í vagninum. Fólk stoppaði mig meira að segja úti á götu til að segja mér hversu fallegt barn ég væri með í vagninum! Og þegar ég segi fólk, þá meina ég ekki eina eða tvær manneskjur... það voru allavegana 15 manns sem töluðu um það. Fólkið á næsta borði á Starbucks hætti ekki að glápa á hann. Strákur sem labbaði framhjá, bakkaði til baka og sagði: "I don´t even like babies, but that´s a PRETTY baby".
Hver gæti líka staðist svona augu:

Já, ég bara spyr!!! :)
Þarna er drengurinn nývaknaður en sat bara í rólegheitunum á gólfinu og lék sér með dótið sitt.

Okei.. núna vill kerfið ekki leyfa mér að vinstri-jafna aftur... ojæja... það verður bara að hafa það.

Ég fór í próf á mánudaginn í geðhjúkrun. Það gekk ekkert alltof vel að læra fyrir það, enda hugurinn hjá ömmu.. en ég náði að lesa svona mestallt af þessum 18 köflum sem voru til prófs (já, 18 köflum!!). Gekk allt í lagi í prófinu en á ennþá eftir að fá út úr því. En til að svara spurningunni sem Hulda spurði í kommentinu við seinustu færslu, þá JÁ, við erum sko í endalausum prófum, verkefnum og skyndikönnunum, aftur og aftur og aftur! Til dæmis, þá var þetta próf númer tvö í geðhjúkrun og það voru sko 24 kaflar til prófs á fyrra prófinu!! og já, við erum búin að vera í skólanum í hvað, 6 eða 7 vikur!! GEÐBILUN!! Og í geðhjúkrun erum við líka búin að skila tveimur vikulegum video-verkefnum sem krefjast þess af okkur að við förum á bókasafnið og horfum á video sem eru flest klukkutímalöng og skilum verkefni upp úr þeim. Og hræðslan við að þurfa að taka áfangann aftur er of mikil hjá stelpunum að það komi til greina að vinna þetta einhvernveginn saman.. ein horfi á þetta video og hin horfi á hitt.. nei takk... Ekkert svindl á þessum bænum! Svo erum vid búin að taka 4 skyndipróf, skila tveimur dagbókarfærslum á viku í verklega, ásamt tveimur "progress notes" um sjúklinginn okkar á viku, eina 8 blaðsíðna hjúkrunaráætlun og eigum eina eftir, ásamt dauða og djöfuls "process recording" sem ég bölvaði í sand og ösku hérna um daginn. Það er semsagt 8 blaðsíðna djúp-greining á 15 mínútna samtali við geðsjúkling, þar sem við teljum upp öll yrt og óyrt tjáskipti sem áttu sér stað, þín og hans, og greinum samtalið niður í öreindir. Við þurfum að skrá rökstuddar ástæður fyrir því afhverju við sögðum það sem við sögðum og rökstuddar ástæður fyrir því afhverju hugsanlega sjúklingurinn sagði það sem hann sagði, tengt við sjúkdómsgreiningu hans. Og við þurftum að vitna í amk 2 bækur og 3 greinar sem þurftu allar að vera amk peer reviewed og eina rannsókn. Þetta er GEÐSÝKI!!! Það held ég að bekkurinn minn fengi NETT kast ef einhver kennari kæmi og reyndi að láta okkur gera eitthvað svona!! sjæse!! En á móti kemur að þessi áfangi er bara 8 vikur, og við verðum búin eftir eina og hálfa!! JEIJJJJ!! þá verður sko veisla hjá Gunnsu!! Næsta fjórðung verð ég bara í einum áfanga, því öldrunarhjúkrunin klárast líka eftir viku. Þá tekur við hand- og lyf sem verður ábyggilega bara gaman. Ég hef heyrt að kennarinn sé alveg frábær, þannig að það boðar gott.

Við vorum með kynningu í öldrunarhjúkrun í dag. Við vorum að vinna "cultural case studies" og ég var í hóp sem tók fyrir african americans. Við áttum að skoða hugsanlegan menningarlegan mun á þeim miðað við aðra hópa hvað varðar þeirra sýn á heilbrigðiskerfið og þeirra heilbrigðisvenjur osfrv. Og ég komst að því að margir aldraðir african americans vantreysta bandaríska heilbrigðiskerfinu. Og maður veltir því fyrir sér hvers vegna það er. Og þá komst ég að nokkru sem ég vissi ekki fyrir, en það er að á þrælatímunum hérna í USA var mjög algengt að svart fólk væri notað sem tilraunadýr í allskonar rannsóknum, til dæmis var ein sem kannaði hvernig það gengi að gera við vaginal fistulur án nokkurrar deyfingar... ááááiiiii.... Og þetta var að sjálfsögðu framkvæmt á svörtum konum. Svo voru þrælar keyptir eða þeim rænt í rannsóknar-tilgangi og lík þeirra voru grafin upp til þess að gera krufningar í rannsóknarskyni. Svo var eitt sem sjokkeraði mig mest, en það er rannsókn sem er kölluð Tuskegee rannsóknin, en í henni, sem byrjaði árið 1932, var 399 svörtum karlmönnum sem greindust með sýfillis ekki sagt frá því, heldur sagt að þeir væru með "bad blood" og þyrftu meðferð. Þeir komu með reglulegu millibili í læknisskoðun og fengu "lyfin" sín, sem voru bara vítamín eða eitthvað.. bara svo læknarnir gætu skoðað hvernig sjúkdómurinn þróaðist. Á þessum tíma var pensilin fundið upp, svo þeir höfðu lækningu, en héldu henni frá sjúklingunum. Ef þið vitið eitthvað í sjúkdómafræði, þá vitið þið kannski að sýfilils er sjúkdómur sem á sér nokkur stig. Ef einstaklingur fær ekki meðferð við honum getur hann lagst á taugarnar, einstaklingurinn sturlast í orðsins fyllstu og getur á endanum dáið. Og á endanum dó meirihlutinn af þessum 399 mönnum - bara vegna þess að læknana langaði að sjá hvað myndi gerast!!!! Og takið nú eftir: þessarri rannsókn lauk árið 1972!! Svo þið getið rétt ímyndað ykkur afhverju gamla, svarta fólkið sem var orðið fullorðið þegar þetta var, vantreystir kerfinu!! Jiminn eini!!

En allavega... í dag fórum ég og Vicky, argentínska stelpan í göngutúr. Við ætluðum að labba út í Lincolnwood Mall sem er í svona 45 mínútna göngufæri frá skólanum. Á leiðinni fundum við garð með allskonar fyndnum og flottum styttum... Tókum nokkrar pósur:

Þegar við vorum næstum komnar að mollinu, hringdi Dino og ætlaði að koma og hitta okkur. Fyrst hann var á bíl, ákváðum við að keyra frekar út í Old Orchard mollið sem er ca. korter í burtu. Ótrúlegt en satt, þá keypti ég ekki neitt!! Afrek aldarinnar!!;)

En á bílastæðinu sá ég magnaðasta skilti sem ég hef séð:

Ja, þær eru náttúrulega ekki fatlaðar... Mér finnst þetta snilld:)

En jæja, það er víst best að fara að stinga sér í bólið.. Drífa mig í sturtu fyrst, því það er búið að vera svo rakt hérna í dag að maður er allur einhvernveginn klístraður.. Já, það var sól og gott veður í dag, 25 stiga hiti. ótrúlega næs. En skrítið hvernig þetta breytist hratt. Fyrir þremur dögum var 8 stiga hiti um kvöldið og við vorum alveg að frjósa, því vindurinn er svo kaldur. Þetta er einhvernveginn allt öðruvísi en heima.

En allavegana, nóg um það.. ég er farin í sturtu.

Ást og kossar frá Chicago
04. október 2006 klukkan 09:34
Gunnhildur Árnadóttir
Anna Gudlaug skrifar ...
ýkt sætur krakki !
En meir að segja ÉG vissi þetta með sýfillis-málið, alveg sjokkerandi heimur sem við lifum í, það er alltaf eitthvað sem maður stendur bara og gapir yfir !
04. október 2006 klukkan 19:49
hæ snullan mín!!!! ég samhryggist þér ótrulega mikið!!! ég hugsa til þín og sakna þín svoooooooo mikið og elska þig meira en allt!!! ég er gjörsamlega buin að vera lost uppá síðkastið.... internetlaus og allslaus en nuna er ettta allt að koma og ég er buin að lesa 3 síðustu færslur sem að ég er búin að missa af :) annars er +eg bara byrjuð hjá nikita og það er vooooooða gaman!!!! þetta sýfillis er bara DJÓK!!!! hversu sick getur mar verið!!!! annars erum ég og robin að fara norður á föstudaginn.... glatað að við séum ekki að heilsa uppá þig!!! love and kisses
04. október 2006 klukkan 21:22
sunna skrifar ...
já.. voðalega sætur húnn...
Segirðu ekki yfirlætislega við alla : \"yes I know, he has my eyes.\"
..og fitjar uppá nefið...

hahaha...
04. október 2006 klukkan 21:23
Matta skrifar ...
Jiminn hvað hann er með falleg augu. Þau eru örugglega stærri en mín! Annars segi ég bara gangi þér vel í öllu þessu lærdómsbrjálæði ;)
05. október 2006 klukkan 19:36
ólöf skrifar ...
litlu snúður...Ógissla gaman hjá þér í mömmó á mánudögum....Ég er hérna að sortera bókhald í vinnunni...væri SVO til í að vera í \"millinu\" AKA smáralind að spreða...
En hafðu það gott kleinan þín og farðu að kaupa eityhvað..ef þú finnur ekkert á þig þá bara að kaupa á mig...ok??
´kv Ólöf@bókhaldsógeð.is
05. október 2006 klukkan 21:49
ólöf skrifar ...
FOKK...ég er ekki heil í höfðinu....mill á AUÐVITAÐ að vera mOll
05. október 2006 klukkan 21:50
Arna Rut skrifar ...
...já við í bekknum þínum hérna á Íslandinu vælum nú yfir fjórföldum eða jafnvel fimmföldum geðhjúkrunartímum... Hafa meira að segja farið upp í áttfalda! En ég get nú ekkert sagt, mætti ekki þá! Þú ert að standa þig hrikalega vel gella ;o)
Kv. Arna
09. október 2006 klukkan 20:11

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...