01nóvember
Okei.. sorry allir.. i fyrsta skipti er thad ekki bloggleti sem veldur thvi ad ekkert hefur verid skrifad a thessa sidu i svona langan tima.. heldur syktist nyja fina tolvan min af einhverjum nyjum ogedis virus sem er ad taka tolvudeildina i skolanum heila old ad losna vid... Ekkert af virusvarnarforritunum fann virusinn og eitthvad rugl, thannig ad thad er ekkert vid thvi ad gera nema bida. Eg er i tolvuverinu i skolanum nuna, en get ekki stoppad lengi..
Thad er Halloween i dag en eg veit ekki hvort eg geri eitthvad i kvold eda ekki. Eg for i halloween party a laugardaginn og thad var rosa gaman. Myndir koma vonandi inn bradlega.. Annars er myphotoalbum lika bilad, thannig ad eg veit ekki hvernig eg a ad koma myndunum til ykkar. Maeli bara med thvi ad allir skrai sig inn a facebook.. thangad koma thaer nebbla fyrst!;)
www.facebook.com !!
En allavega, vonast til ad fa tolvuna til baka bradlega og geta tha komid med almennilegan pistil hingad inn!
24október
Jæja, er þá ekki kominn tími á fréttir af henni Gunnsu? (allavega finnst Berglindi minni það...)
Það er sko margt og mikið að frétta úr Ameríkunni núna!
Um helgina fór ég og fékk að sjá hvernig ALVÖRU háskólanemar skemmta sér!!! Jon vinur okkar hérna í North Park var áður í skóla í Missouri, í bæ sem heitir Columbia. Hann var i fraternity sem heitir Sigma Pi og okkur var boðið þangað í partý!


Hérna sjáiði Sigma Pi merkið og svo mynd af Jon sem hangir uppi í húsinu.. allir meðlimir síðasta árs. hehe plebbi
Við fórum fjögur saman i road trip, þetta er 7 tima keyrsla en var bara gaman á leiðinni. Á föstudagskvöldinu fórum vid í fyrirpartý í fraternity húsinu og fórum svo niður í miðbæ og fórum á tvo bari. Þessi bær er algjörlega byggður utan um skólann, sem er með 35 þúsund nemendur! þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur stemminguna í miðbænum! Svo á laugardeginum vöknuðu strákarnir klukkan tíu um morguninn, í þeim eina tilgangi að byrja að drekka aftur! Við sem ekki meikuðum það, tókum því bara rólega fram til 11, en þá var farið í fraternity húsið aftur, þar var grillveisla og gaman, því homecoming ruðnings leikurinn byrjaði klukkan 1. Það fóru náttúrulega næstum allir á leikinn en þar sem við vorum ekki ein af þeim 70 þúsund manns sem áttu miða (án gríns!), þá vorum við áfram í partýinu og hittum fullt af skemmtilegu fólki, spiluðum pool og fleira. Klukkan 4 um daginn voru næstum allir búnir á því og því var haldið heim þar sem allir lögðu sig fram að kvöldmat. Um áttleytið fórum við aftur.. gettu hvert... í fraternity húsið og þar var sko það villtasta partý sem ég hef séð! Gleymið öllu sem þið sjáið í bíómyndunum... þetta var VERRA!!;)

Þarna sjáiði kjallarann og hluta af fólkinu og svo glittir í barinn líka... hehehe... það var DJ og opinn bar með
ókeypis áfengi og Jello shots sem var ekki slæmt!!:
Við dönsuðum og spjölluðum við fólk og skemmtum okkur konunglega þangað til það var haldið heim um 3 leytið um nóttina. Þetta var búinn ad vera langur dagur! Mig og Vicky langaði helst ekkert að fara heim aftur.. hehe..

Erum við ekki sætar?!;)
En svo í gærkvöldi, þá vorum við Vicky svo heppnar að fá ókeypis miða í óperuna í Chicago! Hanna, konan sem ég er að passa fyrir átti miða en þau hjónin komust ekki, þannig að þau gáfu þá til góðgerðarmála... til fátækra háskólanema:) Ég var að passa fyrir hana í gær, frá hádegi og við Emil Örn fórum í 3 og 1/2 tíma göngutúr um miðborg Chicago (og búðir.. hehe) og svo komum við heim, Vicky kom og hitti okkur og við öll, ég, Vicky, Hanna og Emil Örn fórum út að borða á geggjaðan kínverskan stað. Hanna bauð okkur út að borða.. við geðveikt heppnar, ókeypis næt át onn ðe táwn...:) ekki slæmt það! Óperan sem við sáum heitir Iphigénie en Tauride eftir Christoph Willibald Gluck og meira get ég nú ekki sagt ykkur.. þetta er forngrísk saga um systkini, morð, guði, sjálfsmorð, konunga og margt fleira agalega dramatískt... hehe.. en þetta var þvílík upplifun að fá að prófa þetta.. ég meina, ég held við hefðum aldrei splæst í miða sjálfar....

Svo er það næst á dagskrá að skella sér til NEW YORK! Ójá, þið heyrðuð rétt! Stefnan er tekin á Borg borganna, nýju jórvík helgina 2.-6. nóvember! Ég ætla að gista hjá henni Jóhönnu, frænku Liljunnar minnar og Dino vinur minn ætlar að koma með mér til að halda mér félagsskap þegar Jóhanna er að vinna. Við ætlum að skoða borgina og hafa það gaman!;) Jeij, ég get ekki beðið!! Vill einhver koma með og hitta okkur? Hvað kosta helgarferðir frá Íslandi?! Hvernig væri að skella sér?;)

En jæja, ég verð að drífa mig í hádegismat, læt þetta fréttauppdeit duga í bili! Elska ykkur öll! Knús og kossar,
Gunnsa
17október
13október
Okei fólk.. listen up!!! Núna kem ég til ykkar með vandamál sem svo auðveldlega væri hægt að leysa með góðu spjalli yfir góðum kaffibolla á Amour með góðu fólki... en þar sem það er ekki eins hægur heimangangurinn þangað núna, þá ætla ég að efna til umræðna hérna inni á þessarri síðu minni...
Þannig er mál með vexti að ég sótti, í hálfgerðu bríaríi og án þess að segja nokkrum frá því, um styrk sem félagsmálaráð Akureyrar auglýsti fyrir hjúkrunarnema við HA. Styrkurinn gengur út á það að ég fengi 70 þúsund krónur á mánuði næsta vetur, á meðan ég tek fjórða og síðasta árið mitt í hjúkrun. Í staðinn skuldbind ég mig svo til þess að vinna við öldrunarheimili Akureyrarbæjar í eitt og hálft ár eftir útskrift. Semsagt: námsstyrkur, plús örugg vinna eftir útskrift. Og þið sem vitið að ég stefni á ljósmæðranám, vitið það að maður þarf helst að vinna sem hjúkrunarfræðingur í tvö ár áður en ég sæki um, þannig að þetta kemur kannski út á eitt... Hins vegar er samt tilhugsunin um að vera bundin einhverjum vinnustað í þennan tíma og skuldbinda sig svona snemma, svolítið scary ef þið skiljið hvað ég meina. En ég spáði svosem ekki mikið í þetta áður en ég sótti um, og ýtti bara á "send" án mikillar umhugsunar.
En nú er svo komið, að Gunnhildur ykkar einlæg hlaut þennan blessaða styrk....
Því spyr ég ykkur, mína yndislegu ráðagóðu vini....:
Er öll þessi skuldbinding til þess vinnandi að fá ókeypis 70 þúsund kall á mánuði næsta vetur.. upphæð sem ég þyrfti hvortsemer að taka í námslánum og greiða til baka..? Ég tók óvenju há námslán áður en ég fór hingað til USA, vegna þess að heimavistin og allt það kostaði sitt, þannig að tilhugsunin um að þurfa ekki að taka námslán næsta vetur er ANSI freistandi... En skuldbinding.. öldrunarheimili.. Akureyri... Er þetta það sem ég vil?
Okei.. kannski er fáránlegt að spyrja ykkur hvað ÉG vil... en í augnarblikinu er ég ansi ringluð og þigg öll þau ráð sem ég get fengið!
Endilega tjáið ykkur af hjartans lyst í athugasemdunum hér fyrir neðan!
En að öðru:
Síðasti dagurinn í verknáminu á geðdeildinni var í dag! ÞVÍLÍKUR LÉTTIR!!! Án gríns... ég var mun glaðari, hressari og léttari á fæti í vinnunni í dag, þar sem ég vissi að þessu væri að ljúka!! Mér fannst allir vera mun glaðari í kringum mig.. kannski var starfsfólkið líka glatt að losna við okkur, ég veit ekki.. hehe.. En dagurinn gekk alveg glimrandi vel og við fengum lokamat á frammistöðunni okkar í verknáminu frá leiðbeinandanum okkar, henni Cynthiu. Mitt mat fannst mér svo stórkostlegt að ég næstum táraðist! Ég ætla að skrifa matið hérna inn á síðuna, þó svo að ég eigi frekar erfitt með að skrifa sjálf niður svona gott um sjálfa mig... hehe... En hún skrifaði:
Gunnsa,
I have really enjoyed having you in class. I have been struck by how well educated you are and prepared for the exchange student experience. Your preparation for class and ability to step up to the level expected of students was always apparent. Your ability to write well is impressive. And I would encourage you to keep writing. Nursing needs more writers.
I think that your writing is enhanced by the excellent assessment skils which you demonstrated and with your ability to correctly connect intervention with theory. Also, I have enjoyed reading your writing because you are quite accurate in your assessments and what is the needed care for each patient. You always brought a lot of useful and realistic care to your patients, to your care plans and into your process recording.
I have appreciated your confidence and composure in being able to be on the unit and to get questions asked and clarified, and that I have been able to assign you patients without the sense that you needed "an easy patient". You will go far! This term has not been easy for you on a personal level and I am just amazed at how you have gracefully managed your loss with the newness of the situation that you are in. It has been really a pleasure to have you in class. I am so glad to have learned more about Iceland and about you!
Já, heldur betur fögru orðin sem voru skrifuð um mig, þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig mér leið að lesa þetta.. var næstum farin að skæla.. hahaha...
Svo fékk ég 9,7 fyrir verkefni sem ég skilaði sem gildir 10% í lokaeinkunn! Svo er ég í fyrsta skipti í fríi á föstudegi á morgun, og er ekki lasin lengur svo ég ætla að kíkja út með krökkunum á fimmtudagsdjamm sem er orðið að föstum vana hjá þeim, en ég hef aldrei komist á, þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur að ég er að eiga góðan dag í dag!! Þvílík gleði og hamingja.. hehehe:)
Veðrið úti minnir mig hálfpartinn á ísland... í morgun á leiðinni í verknámið var alveg drullukalt úti og það kom svona kuldagufa útúr mér þegar ég andaði og útblásturinn úr strætóunum lá yfir öllu eins og teppi. Fyrir hádegi byrjaði svo að snjóa, believe it or not! En núna er svo komið sólskin! En stelpurnar sögðu mér að þetta væri sko ekki neitt! Það væri ekki hvasst, þannig að ég ætti nú bara að biðja fyrir mér þegar það byrjar að blása með þessu... Brrrrr hvað það á eftir að verða kalt! Ég var í hlírabol, skyrtu, 66°Norður flíspeysunni minni og vindjakka og mér var hálfkalt samt... Þannig að ætli maður verði ekki að byrja að klæða sig aðeins betur? Haha.. þið sem þekkið mig vel vitið að ég klæði mig aldrei eftir veðri.. kannski ég læri það hérna... Kem heim eins kappklædd og eskimói.. hehe..
En jæja, nóg komið í bili
ENDILEGA TJÁIÐ YKKUR UM ÞETTA "VANDAMÁL" MITT...
ÉG VERÐ YKKUR ÆVINLEGA ÞAKKLÁT!!
FYRIRFRAM TAKKKKKKKKKK....
Gunnsa geggjaða
10október
Vildi bara láta ykkur vita af því að ég er ennþá á lífi! En ég er ennþá lasin :(
Fór aftur til læknisins í dag, sem greindi þetta sem veirusýkingu og lét mig fá eitthvað púst til viðbótar við sýklalyfin, sem og ofnæmistöflur til að losa um stífluna í nefinu á mér... sniff sniff...
Vonandi að þetta lagist bráðum. Hann sagði að þetta lagaðist vonandi á svona viku, tíu dögum... og þá vona ég að hann meini tíu dögum frá því að þetta byrjaði.. því núna er komin vika síðan þá... ég verð sátt ef þetta verður farið um helgina.
En ég fékk að vita það um daginn að ég var hæst í bekknum mínum á síðasta prófi í geðhjúkrun, fékk hvorki meira né minna en 9,6 á prófinu!! hahaha... Haldidi að það sé?! Hæsta einkunn sem ég hef fengið í háskóla ef frá er talið ítölskunámskeiðið sem ég fékk tíu í .. hehehe...
Nokkuð stolt af þessu, þó ég segi sjálf frá.
En svo eru tvö lokapróf í næstu viku, við skulum bíða og sjá hvernig þau fara.. ehemmm...
Fögnum ekki sigri of snemma... :)
En það er allavegana EKKERT að frétta af mér.. ég bara hangi og horfi á sjónvarpið, er í tölvunni, les bækur og blöð, fer í morgun-, hádegis- og kvöldmat og SEF... that´s about it! Og jú, ég drekk te, vatn og gatorade.
Hljómar þetta ekki skemmtilega?
Ég er að gera mitt besta til að reyna að losna við þetta fyrir helgina eins og ég sagði. Því um helgina er Orri, kunningi minn frá Akureyri að koma til Chicago í heimsókn til systur sinnar og mágs og ég lofaði að kíkja í eins og einn öl með honum... þó það væru tveir... :) Vonum það besta.. Allir að krossa puttana fyrir mig..
Og ég veit fyrir víst að það er beðið fyrir mér hérna á heimavistinni.. hehe.. ÁN GRÍNS!!:)
Það er séð um mann hérna, það eitt er víst!!
En ég ætla að skella mér í rúmið, er dauðþreytt eftir heilan dag að gera EKKI NEITT!! ótrúlegt hvað maður getur orðið þreyttur á því.. hehe
Gunnsa lasna kveður
07október
Jæja, þá er það komið á hreint:
Ég er með efri loftvegasýkingu eða upper respiratory tract infection
Fékk sýklalyf og ef ég verð ekki orðin betri á sunnudaginn, þá á ég að koma á mánudagsmorgunn í röntgenmyndatöku af lungunum útaf því að læknirinn heyrði eitthvad surg hljóð ofan í þeim... :(
Þá þarf að tékka hvort þetta er nokkuð lungnabólga... brrrrr
Ekki gott, neinei...
En ég fór bara og keypti mér birgðir í herbergið mitt... nóg af vatni og gatorade...
Kex og te og heitt kakó...
People og Cosmopolitan...
og leigdi tvær myndir á bókasafninu:
Amores Perros og Motorcycle diaries
Báðar innihalda þær Gael García Bernál...
Auður veit um hvað ég er að tala ef hún les þetta...

Semsagt.. ég verð í herberginu mínu ALLA helgina...
Glatað, en svona er lífið.
lovjú pípúl
06október
Ég er drullulasin og mig langar að vera heima hjá mömmu og borða bláberjasúpu..........
04október
Hahahaha... tölvusnillinn hún Gunnhildur var fyrst núna að fatta að það er hægt að setja inn íslenska stafi á þessa amerísku tölvu mína.. hahaha... jæja.. héðan í frá verða bloggin mín kannski skiljanlegri!!;)
En jæja.. gleymum því hversu heimsk ég er...
Á mánudaginn fór ég að passa litla gullmolann hann Emil Örn. Hann er án efa yndislegasta og medfærilegasta barn sem ég hef á ævi minni hitt! Hann brosir og hlær þrátt fyrir að vera dauðþreyttur, en sofnar svo um leið og maður labbar þrjú skref med hann í vagninum. Fólk stoppaði mig meira að segja úti á götu til að segja mér hversu fallegt barn ég væri með í vagninum! Og þegar ég segi fólk, þá meina ég ekki eina eða tvær manneskjur... það voru allavegana 15 manns sem töluðu um það. Fólkið á næsta borði á Starbucks hætti ekki að glápa á hann. Strákur sem labbaði framhjá, bakkaði til baka og sagði: "I don´t even like babies, but that´s a PRETTY baby".
Hver gæti líka staðist svona augu:

Já, ég bara spyr!!! :)
Þarna er drengurinn nývaknaður en sat bara í rólegheitunum á gólfinu og lék sér með dótið sitt.
Okei.. núna vill kerfið ekki leyfa mér að vinstri-jafna aftur... ojæja... það verður bara að hafa það.
Ég fór í próf á mánudaginn í geðhjúkrun. Það gekk ekkert alltof vel að læra fyrir það, enda hugurinn hjá ömmu.. en ég náði að lesa svona mestallt af þessum 18 köflum sem voru til prófs (já, 18 köflum!!). Gekk allt í lagi í prófinu en á ennþá eftir að fá út úr því. En til að svara spurningunni sem Hulda spurði í kommentinu við seinustu færslu, þá JÁ, við erum sko í endalausum prófum, verkefnum og skyndikönnunum, aftur og aftur og aftur! Til dæmis, þá var þetta próf númer tvö í geðhjúkrun og það voru sko 24 kaflar til prófs á fyrra prófinu!! og já, við erum búin að vera í skólanum í hvað, 6 eða 7 vikur!! GEÐBILUN!! Og í geðhjúkrun erum við líka búin að skila tveimur vikulegum video-verkefnum sem krefjast þess af okkur að við förum á bókasafnið og horfum á video sem eru flest klukkutímalöng og skilum verkefni upp úr þeim. Og hræðslan við að þurfa að taka áfangann aftur er of mikil hjá stelpunum að það komi til greina að vinna þetta einhvernveginn saman.. ein horfi á þetta video og hin horfi á hitt.. nei takk... Ekkert svindl á þessum bænum! Svo erum vid búin að taka 4 skyndipróf, skila tveimur dagbókarfærslum á viku í verklega, ásamt tveimur "progress notes" um sjúklinginn okkar á viku, eina 8 blaðsíðna hjúkrunaráætlun og eigum eina eftir, ásamt dauða og djöfuls "process recording" sem ég bölvaði í sand og ösku hérna um daginn. Það er semsagt 8 blaðsíðna djúp-greining á 15 mínútna samtali við geðsjúkling, þar sem við teljum upp öll yrt og óyrt tjáskipti sem áttu sér stað, þín og hans, og greinum samtalið niður í öreindir. Við þurfum að skrá rökstuddar ástæður fyrir því afhverju við sögðum það sem við sögðum og rökstuddar ástæður fyrir því afhverju hugsanlega sjúklingurinn sagði það sem hann sagði, tengt við sjúkdómsgreiningu hans. Og við þurftum að vitna í amk 2 bækur og 3 greinar sem þurftu allar að vera amk peer reviewed og eina rannsókn. Þetta er GEÐSÝKI!!! Það held ég að bekkurinn minn fengi NETT kast ef einhver kennari kæmi og reyndi að láta okkur gera eitthvað svona!! sjæse!! En á móti kemur að þessi áfangi er bara 8 vikur, og við verðum búin eftir eina og hálfa!! JEIJJJJ!! þá verður sko veisla hjá Gunnsu!! Næsta fjórðung verð ég bara í einum áfanga, því öldrunarhjúkrunin klárast líka eftir viku. Þá tekur við hand- og lyf sem verður ábyggilega bara gaman. Ég hef heyrt að kennarinn sé alveg frábær, þannig að það boðar gott.
Við vorum með kynningu í öldrunarhjúkrun í dag. Við vorum að vinna "cultural case studies" og ég var í hóp sem tók fyrir african americans. Við áttum að skoða hugsanlegan menningarlegan mun á þeim miðað við aðra hópa hvað varðar þeirra sýn á heilbrigðiskerfið og þeirra heilbrigðisvenjur osfrv. Og ég komst að því að margir aldraðir african americans vantreysta bandaríska heilbrigðiskerfinu. Og maður veltir því fyrir sér hvers vegna það er. Og þá komst ég að nokkru sem ég vissi ekki fyrir, en það er að á þrælatímunum hérna í USA var mjög algengt að svart fólk væri notað sem tilraunadýr í allskonar rannsóknum, til dæmis var ein sem kannaði hvernig það gengi að gera við vaginal fistulur án nokkurrar deyfingar... ááááiiiii.... Og þetta var að sjálfsögðu framkvæmt á svörtum konum. Svo voru þrælar keyptir eða þeim rænt í rannsóknar-tilgangi og lík þeirra voru grafin upp til þess að gera krufningar í rannsóknarskyni. Svo var eitt sem sjokkeraði mig mest, en það er rannsókn sem er kölluð Tuskegee rannsóknin, en í henni, sem byrjaði árið 1932, var 399 svörtum karlmönnum sem greindust með sýfillis ekki sagt frá því, heldur sagt að þeir væru með "bad blood" og þyrftu meðferð. Þeir komu með reglulegu millibili í læknisskoðun og fengu "lyfin" sín, sem voru bara vítamín eða eitthvað.. bara svo læknarnir gætu skoðað hvernig sjúkdómurinn þróaðist. Á þessum tíma var pensilin fundið upp, svo þeir höfðu lækningu, en héldu henni frá sjúklingunum. Ef þið vitið eitthvað í sjúkdómafræði, þá vitið þið kannski að sýfilils er sjúkdómur sem á sér nokkur stig. Ef einstaklingur fær ekki meðferð við honum getur hann lagst á taugarnar, einstaklingurinn sturlast í orðsins fyllstu og getur á endanum dáið. Og á endanum dó meirihlutinn af þessum 399 mönnum - bara vegna þess að læknana langaði að sjá hvað myndi gerast!!!! Og takið nú eftir: þessarri rannsókn lauk árið 1972!! Svo þið getið rétt ímyndað ykkur afhverju gamla, svarta fólkið sem var orðið fullorðið þegar þetta var, vantreystir kerfinu!! Jiminn eini!!
En allavega... í dag fórum ég og Vicky, argentínska stelpan í göngutúr. Við ætluðum að labba út í Lincolnwood Mall sem er í svona 45 mínútna göngufæri frá skólanum. Á leiðinni fundum við garð með allskonar fyndnum og flottum styttum... Tókum nokkrar pósur:


Þegar við vorum næstum komnar að mollinu, hringdi Dino og ætlaði að koma og hitta okkur. Fyrst hann var á bíl, ákváðum við að keyra frekar út í Old Orchard mollið sem er ca. korter í burtu. Ótrúlegt en satt, þá keypti ég ekki neitt!! Afrek aldarinnar!!;)
En á bílastæðinu sá ég magnaðasta skilti sem ég hef séð:

Ja, þær eru náttúrulega ekki fatlaðar... Mér finnst þetta snilld:)
En jæja, það er víst best að fara að stinga sér í bólið.. Drífa mig í sturtu fyrst, því það er búið að vera svo rakt hérna í dag að maður er allur einhvernveginn klístraður.. Já, það var sól og gott veður í dag, 25 stiga hiti. ótrúlega næs. En skrítið hvernig þetta breytist hratt. Fyrir þremur dögum var 8 stiga hiti um kvöldið og við vorum alveg að frjósa, því vindurinn er svo kaldur. Þetta er einhvernveginn allt öðruvísi en heima.
En allavegana, nóg um það.. ég er farin í sturtu.
Ást og kossar frá Chicago
01október

Audur vinkona og Siggi, yndislegi kaerastinn hennar eignudust litla stelpu i gaer, 29. september! Eg vil oska theim skotuhjuum innilega til hamingju med thennan litla gullmola! Eg get ekki bedid eftir ad sja hana,
........thegar hun verdur ordin 8 manada.... grrrrr.......
Svo breytti eg myndahausnum a siduni, fyrir hana mommu mina... :) Nuna sjaid thid tharna mynd af Chicago, tekna af bat a siglingu a Lake Michigan, sem eins og kannski einhverjir vita, Chicago stendur vid.
Mer lidur agaetlega.. krakkarnir drogu mig ut i gaerkvoldi til ad hressa mig vid og vid skemmtum okkur konunglega. Eg er i thessum toludu (skrifudu) ordum ad henda theim inn a myndasiduna. Kannski eg setji nokkrar inn herna lika..?




Efst til vinstri: Eg og Anna norska. Efst til haegri: Eg og Stefan sem slasadi a ser ulnlidinn a einhverjum tonleikum.
Nedst til vinstri: Richard, Carl, Anna, Marius, Caroline og Thor. Nedst til haegri: Marius, Anna og eg.
Eg kved, af kaffihusinu minu, med gedhjukrunarbaekurnar og tharf ad fara ad lesa thvi thad er prof a manudaginn. Oja, laugardagskvold tekid i laerdom! Truidi thessu?! Glatad alveg hreint.. hehe
30september
Jaeja, thad hlaut ad koma ad thvi ad thad faeri ad reyna a thetta herna...
Elskuleg amma min, Sigridur Gissurardottir, kvaddi thennan heim i gaerkvoldi, naestum 97 ara ad aldri.
96 ara er vissulega har aldur, en hun var an efa hressasta 96 ara kona sem thid hafid nokkurn timann hitt.
A svona stundum er rosalega erfitt ad vera fjarri vinum og fjolskyldu og thad reynir fyrir alvoru a thau vinabond sem madur hefur myndad herna a thessum stutta tima. Sem betur fer hef eg greinilega valid mina vini herna rett og thau hafa oll verid alveg yndisleg vid mig og synt mer studning og ast:)
Eg for ekki i verknamid i dag.. fannst eg ekki alveg getad hondlad hvorki gedsjuklinga ne gamalt folk i dag.
Eg var loglega afsokud af ollum og verknams-leidbeinendurnir voru mjog skilningsrikir og tillitssamir.
Eg er bara ad taka daginn fyrir mig.. sit nuna a kaffihusinu minu med gott kaffi, fartolvuna og InStyle magazine og les um kjolana sem fraega folkid kaupir ser og augnskuggann sem Angelina Jolie notar. Feel-good dagur.
Eg vil senda fjolskyldunni minni astarkvedjur og kossa og eg mun hugsa til ykkar hedan, sem og til ommu sem var ein magnadasta manneskja sem eg hef kynnst. Mer thotti otrulega gaman ad fara i heimsokn til hennar a Grund - vid satum thar saman timunum saman og spjolludum um allt milli himins og jardar! Amma vildi vita allt sem var ad fretta, um skola, vini, vinnu, straka og fleira. Svo sagdi hun mer sogur ur sveitinni og af thvi thegar hun var i Kvenno og ensku-stofan min var heimavist og af epla-ballinu sem er heldur betur ordid breytt fra thvi sem adur var.
Elsku amma! Thin verdur sart saknad, en 97 ar eru langur liftimi og thu sagdir mer i sumar ad thu yrdir ekkert osatt ef thu fengir bara ad fara, en thu lofadir mer samt ad reyna ad tora thangad til eg kaemi heim fra Chicago. En madur faer vist ekki alltaf allt sem madur vill og svona for thetta. Hvildu i fridi - eg veit ad Liljan min tekur vel a moti ther. Ykkur mun koma vel saman :*
Eg a thvi midur enga mynd herna, en eg laet fylgja herna sma um hana ommu mina, courtesy of islendingabok.is...
| Sigríður Gissurardóttir | | Fædd í Drangshlíð í A-Eyjafj., Rang. 27. nóvember 1909 | | | Var í Drangshlíð, Eyvindarhólasókn, Rang. 1910. Verslunarstúlka á Laugavegi 11, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945. | | Heimildir: Þjóðskrá, Bergsætt, 1910, 1930, Rvk.1945 |
| |
En nu ad odru : billinn minn er seldur! Elskan min til 5 ara er farin... farin... farin... :( Halfsorglegt i rauninni.. eg mun sakna thessa fjolublaa fararskjota....
En hver haldidi ad hafi keypt bilinn?! Enginn annar en Smari Tarfur, vanalega kenndur vid Quarashi, tho hann hafi nu aldrei verid official medlimur theirra, ef eg fer med rett mal... Eg oska honum innilega til hamingju med god kaup!! Thessi bill hefur reynst mer vel, thratt fyrir ad eg hafi abyggilega skipt um allt sem haegt er ad skipta um i thessum bil (nema timareimina...) svo hann er allavega halfur endurnyjadur...
Yesus-inn minn (YE130)... thin verdur sart saknad!!!
Eg aetla ad klara kaffid mitt og fara ad lesa bladid mitt
Eigidi godan dag/kvold!
Kvedjur fra Chicago
Gunnsa