21ágúst

Komin i skolann!

Jaeja, tha er madur maettur a svaedid!! Kom til chicago i gaer eftir ad hafa vakad alla nottina, thvi kvedjupartyid hans rafi stod svo lengi ad thad tok thvi ekki ad fara ad sofa adur en eg for ut a flugvoll. En i stadinn kom ad eg nadi ad sofna adur en velin for i loftid og vaknadi i lendingunni, svo thad var fint!
Yfirmanneskja hjukrunardeildarinnar tok a moti mer uti a flugvelli. Hun badst afsokunar a thvi ad hun gaeti ekki farid med mig beint ut i skola, thvi hun thyrfti ad sinna sma erindi fyrst. Erindid var thad ad madurinn hennar er prestur i kirkju og hun thurfti ad fara og hjalpa honum med hadegismat fyrir einhverja krakka sem eru i bibliuskola. Vid forum i kirkjuna og hun settist med mig inn i messu thar sem einhver predikari var algjorlega ad missa sig i gledinni! Pinu othaegilegt... Svo thegar hadegismaturinn byrjadi, kom endalaust mikid af smedjulegum, ofur-kristnum amerikonum ad tala vid mig.. og eins og Gerdur ordar thad, tha hreinlega lak sirop utur munninum a theim.. thvi allt var svo GREAT, WONDERFUL, AWESOME og svo framvegis!! En svo thegar madur for ad spurja thau a moti hvad thau gerdu, tha fekk eg svor eins og "right now, God is leading me to do study" og bla bla bla... thetta hraeddi mig svolitid.. hehe...
En svo kom eg a heimavistina LOKSINS og for inn i herbergid sem er nottla alveg tomt og frekar svona kuldalegt og shabby. En um leid og eg var buin ad taka uppur toskunum, var thad strax mun hlylegra. Herbergisfelaginn minn er ekki komin svo eg bid med hjartad i buxunum eftir ad sja med hverjum eg mun bua.
Alltaf thegar folkid i skolanum var ad segja okkur hvad vid aettum ad taka med okkur, sogdu thau ad vid aettum alls ekkert ad vera ad taka med okkur rumfot og handklaedi og dot sem tekur mikid plass i toskunum, thvi thad yrdi farid med okkur ad versla um leid og vid kaemum. En NEI, verslunarferdin er ekki fyrr en a MIDVIKUDAGINN!! Svo her var eg, ad kafna ur svita, langadi i sturtu og leggja mig, en ekki med handklaedi, lak, kodda, teppi eda nokkurn skapadan hlut!! grrrr var eg pirrud!! En eg nadi ad fara og kaupa handklaedi og stelpa a haedinni minni lanadi mer lak, kodda og lak yfir mig. Gerdur fraenka aetlar svo ad senda mer eitthvad svona dot sem fyrst. Svo gleymdist lika ad segja mer hvenaer kvoldmaturinn fyrir skiptinemana yrdi, svo um sexleytid i gaerkvoldi for eg nidur til ad spyrjast fyrir um thad, og ja, audvitad byrjadi maturinn klukkan halfsex!! (hver bordar kvoldmat svona snemma?) svo eg maetti seint i thad!
En i dag er buid ad vera nog ad gera og eg er buin ad kynnast fullt af folki.. fra austurriki, svithjod, noregi, koreu og fleiri stodum. Mjog gaman. Svo kom nu bara stelpa upp ad mer i matsalnum adan og sagdi: "i like the way you dress...." haha.. thetta fannst mer fyndid... enginn myndi gera thetta heima. En vid spjolludum saman.. hun byr i somu byggingu og eg.. svo thad er gott ad vera buin ad kynnast einhverjum!
En nuna a eftir erum vid ad fara i ferd nidur i downtown chicago og svo aetlum vid ad enda a strondinni! Sweeeet!:) vedrid er geggjad, glampandi sol og svona...

En jaeja, gott ad komast a netid loksins...
Endilega sendid mer imeil eda kommentid, thad er alltaf gaman ad heyra fra folki

Og eg vil oska Ornu innilega til hamingju med litlu stelpuna sem hun eignadist i nott!!:) Thad verdur fullt af bornum fyrir mig ad kikja a thegar eg kem heim!! Audur olett, Herra Aedislegur hennar Volu, stelpan hennar Ornu og svo einn laumufarthegi sem enginn veit um nema eg sem verdur kominn i heiminn thegar eg kem aftur ;) (erudi forvitin?haha)

knus i klessu!! ast og kossar
Gunnsa
21. ágúst 2006 klukkan 23:02
Gunnhildur Árnadóttir
13 athugasemdir
20ágúst

Dagur 1

Jaeja, tha er klukkan ordin halfatta a laugardagskvoldi. Eg var ad koma ur sturtu og gera mig tilbuna fyrir kvoldid thvi gestirnir hans Rafi koma bradum. Eg er buin ad pakka aftur nidur i toskurnar minar, thvi eg tharf ad fara MJOOOOG snemma i fyrramalid af stad! Eiginlega bara i nott... held eg thurfi ad taka leigubil hedan um 5 thvi flugvelin fer klukkan 8. 
I dag forum eg og Craig a roltid herna um Cambridge og skodudum hus og garda og svona. Mjog nice, en thad er alveg OTRUlega heitt uti og eg svitna eins og eg veit ekki hvad. Vid roltum fram hja Harvard haskola og lobbudum um campusinn thar og Harvard Square. Eg fekk mer Caffe vanilla frappuchino a starbucks.. thad var yummy! 

Gaerkvoldid var lika frabaert! Vid forum ut ad borda a geggjadan Tapas stad og fengum geggjadan mat! Hvitlauksraekjur, gaspacho, fylltan kolkrabba i eigin bleki...(weird...), hvitlaukskjukling, graenmetis crepe, kjuklinga krokettur, geitaost, tomata og olifur! Jommm! Svo forum vid a einhvern fraegan jazzklubb sem heitir Wallys og kiktum svo a tvo adra klubba adur en vid forum heim. Herna lokar allt klukkan tvo og thad er byrjad ad kveikja ljosin um halftvo og henda ut, thvi AKKURAT klukkan tvo eiga sko allir ad vera farnir ut. Annars kemur loggan og bostar stadinn.. rosa skritid! Svo er ekki reykt a neinum kaffihusum eda borum og thad er mjog skritid, en samt mjog gott. Madur ser allan stadinn.. enginn reykjarmokkur til ad blokkera syn. Hildur Lind, thu myndir fila ad fara a djammid herna;) 

Annars er bara allt gott ad fretta, mer lidur vel, fyrir utan svitakof... 
Hlakka til ad fara til Chicago a morgun!

Elska ykkur oll og sakna!!
20. ágúst 2006 klukkan 04:42
Gunnhildur Árnadóttir
2 athugasemdir
19ágúst

Boston baby yeahhh

ufff... tha er madur kominn til Boston!!! Eftir yndislegt flug, sem tok bara 5 tima og leid eins og skot, thvi yndislega systir min var fyrsta freyja a fluginu og gat uppfaert mig a SagaClass!! Sweeeet!! Var i fremstu rod, enginn fyrir framan mig, nog plass fyrir lappirnar og eg fekk minn eigin dvd spilara og gat valid um myndir. Fekk lika matsedil og gat valid hvad eg vildi borda! eins og eg sagdi, tha var thetta SWEEEEET!:) Var sott a flugvollinn og er nuna heima hja Rafi og vid, asamt Craig aetlum ad kikja eitthvad ut a lifid herna!:) 
Laet ykkur fretta af thvi ollu a morgun

Thid sem komud i gaer... takk fyrir aedislegt kvold! Thetta var rosa gaman! Fyrir tha sem foru snemma heim, tha endudum vid a Pravda, thar sem Seth var ad syngja Prince tribute tonleika asamt Gudbjorgu. Gaman gaman!

Sakna allra alveg otrulega mikid, en vonandi verdur thad gaman ad eg hef ekki tima til ad hugsa ut i thad!! Knus i klessu!!! 

Kossar og knus!!

Gunnsa amerikuskvisa
19. ágúst 2006 klukkan 06:05
Gunnhildur Árnadóttir
Engin athugasemd
16ágúst

three two one....

jæja krakkz...
þá er maður kominn í borgina og búin að vera bissí krissí hverja einustu mínútu! Trúi varla að ég sé að eyða mínum precious time í að blogga hérna inn.. ætli maður sé ekki bara orðinn hooked.. haha..:)
Leiðin suður gekk bara vel... frágangurinn á íbúðinni og kveðjustundirnar urðu lengur en ég bjóst við. Lagði af stað "aðeins" 4 tímum seinna en stóð til. Svo þegar ég var að keyra inn Öxnadalinn, mætti ég löggubíl. Ekkert sem hann hafði á mig, því ég var á akkúrat 100 og ekki kílómetra hraðar. Svo ég keyrði örugg áfram. En nei, löggubíllinn snéri við og byrjaði að blikka ljósunum á mig! Ég hugsaði með mér að bíllinn fyrir framan mig hlyti að hafa verið að gera, þannig að ég hægi á mér og fer út í kant til að hleypa löggufólkinu fram úr. Helvítis bíllinn fer ekkert fram úr!! Þá ákvað ég að þeir hlytu að vera í einhverju ökuskírteinatékki, svo ég stoppa. Er þetta þá ekki bara Arna stjarna í vinnunni og fékk þá snilldarhugmynd að nota þessa aðferð til að kveðja mig!! Ég fór í hláturskast á staðnum og skammaði hana fyrir að vera svona mikill púki! Fólkið srem sá tvær stelpur knúsast úti á miðjum þjóðvegi 1, hefur án efa verið mjög hissa! Ég hló að Örnu alla leiðina upp á miðja Öxnadalsheiði!!

Um leið og ég kom til Reykjavíkur lá leiðin beint í hitting hjá stelpunum úr bekknum mínum í Kvennó. Mikið var gaman að hitta allar stelpurnar, því sumar hafði maður ekki séð síðan á útskrift, 2004!! Við höfðum það kósý yfir ostum, vínberjum, gosi og spjalli um hvað við værum að gera við lífin okkar! Þvílíkt ólíkar sögur sem við höfðum að segja! Þreytt Gunnsa lagðist upp í rúm á Kópavogsbrautinni um miðnætti og svaf þar til 11 í morgun! Dagurinn byrjaði með heimsókn til tannsa, sem tók saumana úr kjaftinum á mér. Gott að losna við þá, því einn saumurinn lafði niður og var að gera mig geðveika! Hann sagði að þetta liti vel út, þrátt fyrir að ég væri nú "óvenju bólgin". NO SHIT, SHERLOCK!!!!!:)

Svo hefur dagurinn farið í allskonar stúss... búðaráp, ömmuheimsókn, Kolluhitting, íslenskt-design-shopping, út að borða með Auði, Sunnu og Eyrúnu og akkúrat núna, hvítvínsdrykkju og rockstar gláp með Ólöfu, Hjalta og Hjöddu. Mjög kósý. Takk fyrir daginn allir!

Dagskrá morgundagsins er svo nær fullbókuð.. en enn eru örfá sæti laus, svo hafið samband sem fyrst ef þið viljið næla ykkur í dýrmætar Gunnsu-mínútur!!!:)

Sakna Akureyrar.. sérstaklega Hlyns (no offense á alla aðra.. hann er bara einfaldlega bestur!;)). Takk elskan fyrir að nenna að passa pottaplönturnar... ég treysti þér alveg! (þó aðrir hafi efasemdir..hehe). Það var líka erfitt að kveðja Kristjönu (sem gaf mér yndislega vettlinga, TAKK!) og að fara í garðinn, sem var næstseinasta stopp áður en ég hélt til Reykjavíkur. Mætti grátbólgin heim til Völu, Hólmars og Herra Æðislegs, sem ég því miður gat ekki knúsað neitt, sökum hálsbólgu. Ég knúsa hann bara vel og vandlega þegar ég kem heim (og hann orðinn rúmlega 10 mánaða!!! ARGHH). Þvílíkt fúl að missa af skírninni hans, en skötuhjúin lofuðu mér heitt og innilega að senda mér sms um leið og presturinn hefur ausið síðasta vatnsdropanum á höfuð þessa fallega barns.

Ég ætla að hætta að trufla krakkana við Beverly Hills gláp með tölvutakkglamri.. og fara kannski bara bráðum í háttinn. Busy dagur framundan.

Bestu kveðjur úr borginni! Elska ykkur öll, Akureyrarrotturnar mínar!!
16. ágúst 2006 klukkan 07:33
Gunnhildur Árnadóttir
3 athugasemdir
13ágúst

FIMMMMMMM!!

Jæja krakkar!
Í dag eru fimm dagar þangað til ég fer út.. en bara ca. 24 tímar þangað til ég fer frá yndislegu Akureyri!! Og nei, ég er EKKI búin að pakka! lalalala... En hún Eva Dögg mín (Ólafsdóttir, ekki Rúnars), kom hérna í gær og bjargaði mér þokkalega frá því að snúast í hringi hérna á stofugólfinu. Ég hafði ekki hugmynd um hvað ég ætti að gera  næst, þar til hún kom og byrjaði að stjórna aðgerðum eins og harðstjóri.. þessi kassi fer bara þarna, svo förum við með þetta út, ég set þetta hérna, sækt þú bílinn, út með kassana, svo var hún byrjuð að ryksuga íbúðina á meðan ég bar kassana út í bíl!! Takk æðislega þú ert æði!!!:) Bjargaðir mér!

Bjargvætturinn minn í dag verður svo hún Hildur Lind (já, ég er ósjálfstæð og get ekki gert neitt ein...). Hún ætlar að koma og hjálpa mér að velja föt ofan í tösku(r). Svo á ég bara eftir að þrífa íbúðina hátt og lágt og þá ætti allt að vera orðið set.

En í kvöld er komið að kveðjustund! Ég, duglega húsmóðirin, ætlaði að vera rosa klár og elda kvöldmat ofan í liðið sem ég ætla að kveðja. Svo komst ég að því að þetta yrðu það margir að ég hreinlega NENNTI því ekki. Svo ég pantaði bara hópmatseðil á Strikinu í kvöld og vonast til að sjá sem flesta þar klukkan 7. Fengum flott tilboð og hver borgar fyrir sig.  Ef þú lest þetta, langar að koma og ég hef ekki hringt í þig: Endilega komdu!:) The more the merrier! Ég hef ekki náð í alla sem ég ætlaði að ná í, en vona nú að það verði ágætis mæting! Svo á ég bara að fara á næturvakt í nótt.. seinasta vaktin! Mæting klukkan 11! Mikið verður erfitt að kveðja alla!! :(

Jæja, best að koma sér aftur að því að pakka!! :(
Sjáumst í kvöld, eða í Reykjavík á morgun eða hinn!
13. ágúst 2006 klukkan 18:37
Gunnhildur Árnadóttir
4 athugasemdir
12ágúst

SEX!!!

Glöggir lesendur tóku væntanlega eftir því að ég sleppti sjö í niðurtalningunni... en það er bara vegna þess að ég hafði ekkert fallegt að segja í gær... lá bara að drepast hérna heima hjá mér og svaf og horfði á video til skiptis. En í dag líður mér aðeins betur og ætla að tækla tiltektina hérna heima af öllu afli! Hver sem er í stuði til að hjálpa mér er velkominn í heimsókn!!;) Vegleg verðlaun í boði!!;) Koma svo!!!
12. ágúst 2006 klukkan 16:16
Gunnhildur Árnadóttir
1 athugasemd
10ágúst

ÁTTA!!!

Held að ég sleppi því bara að blogga í dag. Hef ekkert fallegt að segja. Eina sem mér dettur í hug er kvart og kvein yfir hálsbólgu og hamstraveiki.
Er enn hjá mömmu og pabba, veit ekki hvenær ég fer heim eða hvernig... líklega flug á morgun.... Sjáum til!

...þangað til mér dettur eitthvað fallegt í hug til að segja...

... ætla ég að þegja...

10. ágúst 2006 klukkan 22:33
Gunnhildur Árnadóttir
1 athugasemd
10ágúst

NÍÍÍíííÍÍÍíuUuUuuUuu.....

Níu dagar í dag þangað til ég I'll be leaving on a jet plane...
En það er alls ekki það sem er mér efst í huga í dag, ónei! Það sem er mér stærst áhyggjuefni í dag er munnurinn á mér! Hér sit ég, bólgnari en hamstur með tannrótarbólgu, verkjuð til helvítis og drekk útþynnt skyr og herbó-sjeika með röri! Maaaan, this is life! Ofan á þetta allt saman er ég ennþá kvefuð, með stíflað nef og nefrennsli í einu, hellu og suð fyrir eyrunum og verki í hálsinum sem þó renna bara út í eitt með bólguverkjunum eftir jaxlatökuna.

Ef einhver sem les þetta hefur einhverntímann þurft að láta rífa úr sér jaxla sem eru pikkfastir ofan í beini, ætti sá hinn sami að kannast við hljóðin sem koma þegar tannlæknirinn þjösnast með með bor uppí munninum á manni og notar svo einhverskonar vogarstöng til að þröngva tönninni upp. Þvílíkt ískur og brak og bresti hef ég aldrei heyrt á ævi minni. Ég fann alla vöðva líkamans stífna upp og áður en varði var ég komin í keng í stólnum, bara af hræðslu við hljóðin sem kæmu næst. Í bland við þetta komu svo hljóðin í soginu sem klinkan beitti við að soga úr munninum á mér að mér fannst heilu lítrana af blóði (sem voru samt ábyggilega ekki meira en nokkrir millilítrar....).

En nóg um það.. ég er allavegana heima hjá mömmu og pabba á selfossi, dauðfegin því að hafa ekki ákveðið að fara strax norður aftur í dag. Það er gott að fá amk einn dag af foreldravorkunn. Er að spá í að fara norður aftur á morgun ef ég verð eitthvað skárri af þessum f*****g verkjum! Get ekki ímyndað mér að það sé þægilegt að fara í flug með svona þrýsting í munninum.. Nógu óþægilegt var flugið í morgun skal ég segja ykkur!

Æji vá, ég er búin að kvarta meira en nóg! Sorry!
Ég skal hætta að kvarta og segja ykkur eitthvað gleðilegt..

Litlu ormarnir hennar systur minnar eru hérna hjá ömmu sinni og afa þessa vikuna. Þau eru alveg stórkostleg. Rétt í þessu var litla skottan að hleypa skítuga nágrannakettinum inn um aðaldyrnar og bauð honum beint til sætis í betri stofunni. Mamma var ekki par ánægð með það.. hehe...
Litla dúllan vorkennir mér líka svo mikið, að mér sé svona illt... Er alltaf að bjóða mér eitthvað; bita af fiskinum sínum, súkkulaðirúsinur, hnetur.... Skilur ekkert í því hvað það þýði að ég geti ekki tuggið... inconceivable...:)
Litli gaurinn var svo að fara í afmæli áðan og skildi ekkert í því afhverju hann mátti ekki fara í grútskítugum fótboltagallanum og með úfið hárið... Hvaða rugl er þetta eiginlega?;)

En allavega, ég ætla að fara og vorkenna mér aðeins meira... tíhí

Elskiði friðinn og strjúkiði kviðinn...
10. ágúst 2006 klukkan 00:17
Gunnhildur Árnadóttir
2 athugasemdir
08ágúst

10 dagar í dag!

Jæja.. þá hefst niðurtalningin fyrir alvöru....
TÍíÍÍíiÍuuuuuuuuuuuuuuuu... og ennþá styttra þar til ég fer frá Akureyrinni!
Á ennþá eftir að gera allt sem ég átti eftir að gera í gær... össs...
Svo er gaman að segja frá því að hálsbólga bankaði uppá hjá mér í nótt og olli því að ég þurfti að fara heim úr vinnunni í dag klukkan tíu, því ég var ekki að gera neitt gagn fyrir fimmaura. Fór heim og er búin að sofa í allan dag. Get varla kyngt munnvatni, hvað þá fleiru, og kvíði því stórlega að þurfa að gleypa risavöxnu sýklalyfjatöflurnar sem ég þarf að taka útaf aðgerðinni á morgun... Þær eiga ábyggilega eftir að festast hálfa leið í stokkbólgnum hálsinum mínum og kæfa mig! Cause of death: penicillin!
Og svona fyrst ég er í sjálfsvorkunargírnum get ég líka sagt ykkur hvað ég hlakka mikið til að fara í flug í fyrramálið með hellu fyrir eyrunum, bólgur í kinnholunum og sýkingu í hálsinum... maaaaaaaan it's gonna be fun!
En, eins og ég sagði í síðustu færslu: Þetta reddast!

Ég nota líka þessa sjálfsvorkun sem ástæðu til þess að gera ekki rassgat... ég verð náttúrulega að sofa og hvíla mig... pakka bara niður seinna... þetta reddast alltsaman er það ekki?!;) Uppáhaldssetningin mín núna! Takk Sissú;)

Annars hef ég svosem ekkert spennandi að segja. Held að dagarnir mínir tveir í Boston verði frekar skrítnir þar sem Rafi er á fullu að flytja til íslands þessi elska og mun væntanlega ekki hafa mikinn tíma fyrir mig... En Craig ætlar að koma frá Philadelphiu og mun væntanlega gera sitt til að hafa ofan af fyrir mér. Svo fékk systir mín flugið mitt til Boston, þannig að hún verður að flugfreyjast og þjónusta mig á leiðinni. Ekki slæmt það;)

Er annars bara farin að hlakka FREEEEEKAR mikið til að fara...
er að spá í að fara að gera eitthvað..
NÚNA..
..eftir smástund...:)

Over and out...
08. ágúst 2006 klukkan 23:58
Gunnhildur Árnadóttir
3 athugasemdir
08ágúst

11 dagar and counting!!

Ég vissi ekki alveg hvenær væri réttur tímapunktur til að byrja að blogga... Vissulega hefði ég getað beðið þar til á morgun þannig að niðurtalningin væri tíuníuáttasjösexfimmfjórirþrírtveireinn.... en ég ákvað að byrja í dag því ég nenni engan veginn að fara að pakka niður og ganga frá íbúðinni!

En já, þið eruð að lesa rétt: það eru bara 11 dagar þangað til Gunnsan yfirgefur skerið fyrir spennandi ævintýri í heimabæ bráðavaktarinnar; Chicago! Bara vika þangað til ég held til höfuðborgarinnar og yfirgef íbúðina mína og innbúið og legg það í hendurnar á Heiðu. Það helltist nettur taugaveiklunarfílingur yfir mig áðan þegar ég fattaði þetta, því ég á víst alveg nóg eftir að gera áður en ég fer!

Taugaveiklunin magnaðist svo þegar ég fattaði það að ég þarf víst að fórna þremur af þessum 7 dögum sem ég hef hérna í sælunni til þess að fara suður til kjálkaskurðlæknis sem þarf að krukka eitthvað í kjaftinum á mér og  lætur mig væntanlega borga hálfa aleiguna fyrir.. En.. eins og þeir segja á íslensku: ÞETTA REDDAST... Djöfull var ég nú samt ekki að kaupa það hérna í panikkatakkinu áðan þegar Sissú og Þórdís töngluðust aftur og aftur á þessarri setningu.... reddast smeddast... sjáum nú til með það! Held að ég neyðist til að fórna mömmuhjúkrun eftir aðgerðina, hoppa norður og pakka niður verkjuð og útlítandi eins og hamstur hægra megin... gaman gaman!

En svona, fyrst ég er að skrifa hérna á annað borð, get ég alveg eins stiklað á stóru í sögu helgarinnar. Eva Dögg, Sissú, Þórdís, Oddur, Eysi og Kolli voru hérna hjá mér um helgina. (Já, við gistum öll hérna í 27 fermetrunum mínum! - sannar að þröngt mega sáttir sofa). Þau fóru öll áðan og það er heldur tómlegt hérna hjá mér.. en þó notalegt að geta gengið um gólfið án þess að hrasa um hrjótandi fólk hægri vinstri (já, Eysi, taktu þetta til þín!!:)).  Við fórum í Ásbyrgi á föstudaginn og sáum ótrúlega magnaða tónleika Sigurrósar. Umhverfið, stemmingin, fólkið, veðrið.. allt stuðlaði þetta að ógleymanlegri upplifun! Vorkenni hverjum þeim sem missti af þessu! Fórum í Jarðböðin í Mývatnssveit á leiðinni heim og steiktum okkur þar í góða tvo tíma.
Lög kvöldsins voru íslenski þjóðsöngurinn, Maistjarnan og B-I-B-L-Í-A :)

Laugardagurinn var svo tekinn með stæl - Mojitopartý á la Gunnsa þar sem Hildur Lind og Hildur Þóris mættu báðar og það var svona semi-Breiðó-reunion fílingur í þessu! Svo var stefnan tekin á Kaffi Akureyri þar sem sveittir kroppar dönsuðu til klukkan sex um morguninn! Fleira fólk hef ég aldrei séð í miðbæ Akureyrar í þessi tvö ár sem ég hef búið hér. Röðin á Amour náði út að Perfect og ég hljóp frekar heim að pissa heldur en að bíða í röðinni á klóið uppi. Gaman engu að síður!
Brauðstangir með Bernaise kláruðu kvöldið fullkomlega!
Lög kvöldsins voru klárlega Maneater með Nelly Furtado og Barfly með Jeff Who.

Sunnudagurinn hófst með hangsi langt frameftir degi en var farinn að þróast út í ágætis partý þegar fyrsti hvíti rússinn var hristur um fimmleytið!:) From Russia With Love. Mojitotaktarnir voru æfðir áfram og vöktu mikla lukku. Grúppíum hópsins tókst að pota okkur á gestalista á balli hinnar mögnuðu hljómsveitar Kungfú og þangað var stefnan tekin um eittleytið. Þar var ENGINN fyrir utan okkur, og því var þetta í raun bara eins og einkapartý með hljómsveit! Ekki slæmt það! Áttum að sjálfsögðu dansgólfið og nýttum okkur það til hins ýtrasta. Það bættist aðeins í hópinn þegar leið á nóttina, en þegar hljómsveitin var að byrja uppá nýtt á prógrammi kvöldsins og ískyggilega mörg lög að heyrast í annað sinn, þá ákváðum við að yfirgefa pleisið og leita á önnur mið. Amour-rotta hópsins (that's me...) kom okkur fram fyrir röðina sem var þó aðeins styttri en kvöldinu áður. Þar stigum ég og Hildur Lind trylltan dans til lokunar, en restin af hópnum hafði verið að tínast heim. Svo nýtti ég mér þann lúxus að hafa Hlöllabílinn á Akureyri og fékk mér kalkúnabát með extra Hlöllasósu... Jömmí! Góður endir á skemmtilegu kvöldi!
Lög kvöldsins voru að mínu mati Living on a Prayer og Sweet Home Alabama í flutningi Kungfú.

Jæja.. þessi fyrsta færsla er orðin alveg nógu löng í bili.. ábyggilega allir hættir að lesa. Ég þakka bara krökkunum kærlega fyrir æðislega helgi! Frábært að ná svona góðu djammi áður en maður leggur í langferð til útlanda! Ég mun sakna ykkar!

Ein pæling í lokin: Afhverju eru báðar klikkuðu kellingarnar í Melrose Place hafðar rauðhærðar?! (Amanda er náttúrulega ljóshærð en hún er líka meira bara mean frekar en klikkuð eins og Sydney og Kimberly...) Ef þið hafið svar.. látið mig bara vita!
08. ágúst 2006 klukkan 01:01
Gunnhildur Árnadóttir
5 athugasemdir

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...