15september

EITT ENN!!

Gleymdum að láta ykkur vita að við erum komnar með símanúmer hérna! Svona ef ykkur dettur einhverntímann í hug að eyða hálfri aleigunni í að hringja til Malaví. Fyrir þá sem eru tæknivæddir er náttúrlega hægt að ná sér í Skype, kaupa inneign þar og hringja í okkur fyrir kúk og kanil á mínútuna.
En ég læt allavega númerin fylgja:
Benedikta: +265-942-3870
Gunnsa: +265-942-3867
15. september 2008 klukkan 13:40
Gunnhildur Árnadóttir
7 athugasemdir
15september

tölvupóstur og myndamál

er búin að vera að bagsa við það að hlaða inn myndum. Það hefur gengið eitthvað brösuglega, en ég held að það ættu einhverjar myndir að vera komnar inn í albúmið hérna á bloggsíðunni.
Svo er annað mál. Við sendum út fjöldapóst með litlu fréttabréfi sem við skrifuðum. Ef þið hafið ekki fengið það, en viljið vera á póstlistanum, endilega skrifið hérna í kommentin...
ást og  kossar
15. september 2008 klukkan 13:11
Gunnhildur Árnadóttir
5 athugasemdir
14september

ÚFF!!

Hahaha... Ég veit ekki alveg hvernig ég á að koma orðum að síðustu dögunum hérna... þetta verður eiginlega að vera meira í stikkorðaformi því við höfum takmarkaðan tíma á netinu hérna....
en það sem við höfum gert síðustu daga:
*tónleikar með skemmtilegu fólki með vinsælustu hljómsveit Malaví, the black missionaries. Hittum fullt af fólki sem hafði verið vinir Fríðu, ástu og bjarnheiðar sem voru hérna fyrir 2 árum og tóku okkur opnum örmum. Stelpur, ef þið eruð að lesa: Yamikani og Duncan biðja kærlega að heilsa!!:D
*gerðum okkur tilbúnar í rafmagnsleysi
*kynntumst rosa góðu fólki og eigum núna fullt af vinum:)
*fórum út að borða með íslendingum frá þróunarsamvinnustofnun og fengum steik og rauðvín!!
*fórum í brúðkaup þar sem við vorum eina hvíta fólkið og þóttum mjög merkilegar og vorum meira að segja teknar upp á svið til að láta taka myndir af okkur og brúðhjónunum saman. Þegar veislustjórinn fór að bjóða fólki að taka mynd af sér með hvíta fólkinu (Azungu) fyrir 500 Kwacha (250 kr íslenskar), þá var okkur nú nóg boðið og fórum niður af sviðinu....
*Búnar að fá rosa mikið af góðum mat, þar á meðal Nsima sem er maísgrautur sem er aðalfæða Malawa.
*Fólkið hérna er yndislegt og hjálpsamt en ótrúlega óstundvíst.....
*Malavískur tími er mjög teygjanlegt hugtak og það gengur allt mjöööög hægt og við höfum þurft að bíða mikið mikið mikið hérna og lærum mjög mikla þolinmæði!! Góð reynsla...
*Förum líklega til Madisi, þar sem við verðum að vinna á miðvikudaginn. Fyrst átti það að vera á föstudaginn.. svo breyttist það í mánudag, svo þriðjudag og núna er stefnan sett á miðvikudag... sjáum til hvort það gengur upp!! kemur í ljós!!
Leyfum ykkur að heyra frá okkur bráðlega aftur. Er í þessum töluðu að reyna að hlaða inn myndum á facebook... ef það tekst þá hendi ég linknum hingað inn...
Ástarkveðjur frá Malaví!!
Gunnsa og Ditta
14. september 2008 klukkan 15:40
Gunnhildur Árnadóttir
1 athugasemd
09september

komnar á leiðarenda!!

Jæja!!! þá erum við komnar, eftir næstum 15 tíma ferðalag!! þetta gekk samt rosalega vel og Kenya Airways fá hæstu einkunn frá okkur báðum!! Góður matur og náðum báðar að sofa! Vorum samt heldur betur ringlaðar þegar við komum og maður er í smá menningarsjokki hérna. Þegar ég segi smá, þá meina ég ROSALEGU!! Húsin hérna eru mjög skrautleg og það er fólk ALLSSTAÐAR!! konur sem bera töskur og dót á höfðinu og börnin á bakinu og allir litlu krakkarnir hlaupa á eftir okkur og segja Azungu, azungu, sem þýðir hvítur maður og svo veifa þau okkur!!
En allt fólkið hérna er alveg ótrúlega vingjarnlegt og allir vilja allt fyrir okkur gera og við erum með dræver sem á að keyra okkur hvert sem við viljum fara. Við báðum hann um að skutla okkur á skrifstofur Þróunarsamvinnustofnunar hérna í Lilongwe og þar hittum við þrjár íslenskar stelpur. Þær buðu okkur með í hádegismat og við sitjum núna á rosa fínum veitingastað og borðum hádegismat á meðan ég er einstaklega skemmtileg og bara blogga á meðan...
Ég ætla að sýna af mér smá kæti og vera með í samræðunum hérna.. . ég reyni að blogga aftur bráðlega!!
ást og kossar,
Gunnsa og Ditta
09. september 2008 klukkan 11:02
Gunnhildur Árnadóttir
11 athugasemdir
03september

Með taugarnar þandar.......

Jæja.. þá er barasta komið að því! London á morgun, Malaví á laugardaginn!! Sé ykkur öll eftir hálft ár!!:D Endilega verið dugleg að fylgjast með hérna, ég veit ekki hvort við búum til nýja bloggsíðu eða látum þessa duga, en ég mun allavega þá setja link inn á nýju síðuna hingað. Það væri allavegana gaman að heyra frá ykkur skilaboð við og við, hvort sem það er hérna í gegnum bloggið eða facebook eða myspeis eða bara ímeil!
Fyrir ykkur sem ekki vitið hvar Malaví er, þá ákvað ég að láta smá kort fylgja:
                          
Þeir kalla landið "the warm heart of Africa", því fólkið þar er víst svo yndislega vingjarnlegt og gestrisið! Vonum bara að það standist! Kemur allavega mjög bráðlega í ljós:)

Wish me luck!!:)
03. september 2008 klukkan 23:38
Gunnhildur Árnadóttir
2 athugasemdir
14júní

Jahérna.

Ekki lengur:


Heldur:


Haldiði að það sé.....;)
14. júní 2008 klukkan 17:02
Gunnhildur Árnadóttir
12 athugasemdir
30maí

föstudagur 30. maí

Föstudagurinn 30. maí er síðasti dagurinn sem ég þarf að labba inn í Háskólann á Akureyri!!!
Ég mun kynna lokaritgerðina okkar sem er búin að vera lengi í fæðingu og var skrifuð af mikilli ást og alúð!
Á morgun kveðjum við hana og kynnum fyrir kennurum og samnemendum.
Ég ætti að sjálfsögðu að vera sofandi núna og safna kröftum fyrir kynninguna, en get með engu móti sofnað núna... er bara að leika mér á nýju tölvunni minni sem ég var að kaupa í dag!!
Ójá!! Eftir að gamla tölvan mín gaf upp öndina fyrir viku síðan, hef ég verið að leita að hinni fullkomnu tölvu fyrir mig. Fann hana loksins og keypti í dag. Toshiba satellite 13 tommu tölva, lítil og nett og með öllu sem æðisleg tölva þarf að hafa. Ég er allavegana mjög sátt við þessi kaup!
Endilega hugsið til mín klukkan 3 í dag, því þá verð ég að standa fyrir framan fullan sal af fólki og kynna ritgerðina okkar, barnið okkar, afkvæmið..... Jööö minn eini!!
Úff....
Gangi mér vel...
Takk takk
Góða nótt!!
30. maí 2008 klukkan 00:36
Gunnhildur Árnadóttir
3 athugasemdir
14maí

Búin!!!

Ritgerðin komin úr prentun og búin að skila!!! VEIIII!!:D
14. maí 2008 klukkan 17:53
Gunnhildur Árnadóttir
3 athugasemdir
13apríl

Jæja...

Æji.. af einhverri skyldurækni finnst mér eins og ég verði að henda inn einu bloggi hérna
Efast samt stórlega um að einhver eigi eftir að lesa þetta...

En ég er allavegana komin heim eftir æðislega ferð til Chicago og New York! Hafði það yndislegt í góðra vina hópi og náði að slappa vel af fyrir lokatörnina í skólanum.

Lífið mitt núna er afskaplega óspennandi og fá mjög litlu að segja. Það eina sem ég geri þessa dagana er að vinna og skrifa lokaverkefni. Það gengur bara helvíti vel hjá okkur og við stefnum að því að fyrsta útgáfa til yfirlestrar verði tilbúin 1. maí. Lokaskil eru svo 15. maí. Við kynnum svo verkefnið 30. maí og útskrifumst svo vonandi 14. júní!! Jeijj! Þá verður loksins þessarri fjögurra ára háskólagöngu minni lokið og ég komin með BS próf í hjúkrunarfræði. Gunnsa hjúkka!

Ég verð að vinna á slysó hérna fyrir norðan í sumar og í september höldum við Ditta svo til Malaví. Já, það er orðið "final" - við munum fara út og verða í sirka 3-5 mánuði. Kannski við tökum smá ferðalag eftir vinnutörnina og skoðum einhver framandi lönd. Hver veit. Heimkoma er svo áætluð í janúar/febrúar 2009. Þá tekur við hjá mér vonandi vinna einhversstaðar, hvort sem það verður í reykjavík eða einhversstaðar annarsstaðar. Haustið 2009 langar mig svo að fara út til Chicago og vinna og fara í mastersnám. En til þess að það gerist þarf ég að vinna óendanlega mikla pappírsvinnu og fara í heilmörg próf. Ég þarf að taka GRE próf, TOEFL próf og svo bandaríska NCLEX-RN hjúkkuprófið sem testar mann upp úr öllu námsefninu í hjúkrunarfræði! Það verður án efa svolítið tricky og ég held ég taki bara með mér bækur til að lesa fyrir það til Afríku.

En jæja... nú er komið nógu langt hlé frá lokaverkefnisskrifum... Verð að fara og vera dugleg!!

Endilega látið mig nú vita ef þið eruð að lesa þetta.. haha

Gunnsa næstum-hjúkka
13. apríl 2008 klukkan 17:34
Gunnhildur Árnadóttir
5 athugasemdir
16mars

hi

bara orstutt herna thar sem eg er ad stela mer interneti heima hja vinkonu laurenar vinkonu dino...
siminn minn virkar ekki herna, thannig ad ef thid thurfid ad na i mig, tha kemst eg sjaldan i internet, en eg er komin med ameriskt numer sem er
001-773-255-6773

thannig ad thid getid sent mer sms i thad numer ef thad er eitthvad spes

Otrulega gaman herna hja mer og eg lofa ad reyna ad henda inn odru bloggi bradlega

love!!!
Gunnsa
16. mars 2008 klukkan 00:27
Gunnhildur Árnadóttir
3 athugasemdir

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...