03mars

Ein fyrir Auði!!

Þó það sé nú orðið ansi langt síðan ég lofaði henni Auði minni að henda eins og einni færslu hingað inn, baaaara fyrir hana, þá er það ekki fyrr en núna sem ég stend við það. Og ég biðst afsökunar á því!

Mér finnst ég svosem aldrei hafa neina ástæðu til að skrifa hingað inn, finnst alltaf allt bara ganga sinn vanagang... en það er ábyggilega ýmislegt fréttnæmt engu að síður, þó mér finnist ég alltaf vera búin að segja öllum allt...

Núna styttist í að ég og Ditta fáum endanlegt svar frá Hjálparstofnun Kirkjunnar. Við sóttum um að fara á þeirra vegum sem sjálfboðaliðar í 3-5 mánuði til Malaví. Við sóttum um að fara í september og ég vona heitt og innilega að það gangi upp. Því annars þarf ég að byrja að spá í hvað ég ætla að gera þegar ég verð stór :S

Svo er minna en vika í það að ég haldi til Bandaríkjanna. Flýg út til New York á sunnudaginn næsta, verð þar í 5 daga og fer þaðan til Chicago þar sem ég verð í 13 daga og verð svo aftur eina nótt í NY á leiðinni heim. Lendi á Íslandi aftur 29. mars. Get ekki beðið og hlakka svo til að hitta alla að þið getið ekki ímyndað ykkur það! Þetta verður æðislegt!!

Svo þegar ég kem heim þá tekur bara við lokaverkefnisvinna út í eitt þangað til 15. maí en þá er lokaskil á verkefninu. Svo kynnum við það 30. maí og útskriftin mín er svo 14. júní. Veit ekki hvort ég á að halda upp á útskriftina hér fyrir norðan eða bara í Reykjavík daginn eftir eða eitthvað svoleiðis.... hvað finnst ykkur?
Væri einhver til í að taka road-trip til Akureyrar til að koma í útskrifarveislu?!

En jæja... nóg af fréttum í bili...
Látiði mig svo endilega vita hvort það er einhver yfirhöfuð sem les þetta blogg með því að skilja eftir athugasemdir!!;)
03. mars 2008 klukkan 14:49
Gunnhildur Árnadóttir
10 athugasemdir
24janúar

gleði gleði gleði, gleði líf mitt er....

Sit núna með henni Dittu minni í þessarri líka frábæru læri-aðstöðu sem er búið að útbúa í kjallaranum á Pennanum í Hafnarstræti. Hér er allt til alls. Þægilegir stólar, þráðlaust internet, allar skólabækur sem kenndar eru í Háskólanum, innstungur, skjávarpi og síðast en ekki síst: Te og Kaffi á efri hæðinni! Þetta er auðvitað ekkert nema pjúra lúxus. Hérna sitjum við svo og brainstormum og skrifum skemmtilegasta lokaverkefni sem skrifað hefur verið við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri fyrr og síðar!! Lýg engu um það... held ég!! :)

Það er svo ýmislegt spennandi í farvatninu sem ég segi ykkur kannski frá síðar, en það er eitthvað sem hefur með það að gera hvað ég geri í framtíðinni... segi ekki meir;) Múahahahaha.....

Ég er svo farin að hlakka til Chicagoferðarinnar miklu með viðkomu í New York. Er farin að plana að kíkja á eins og eitt Broadway sjów með henni Joönnu og að hitta hann Matt sem kom í heimsókn hingað á Akureyri í haust. Svo er það bara Chicago sem er óráðin eins og svo margt í henni veröldinni en ég hef sko engar áhyggjur af því að sitja aðgerðalaus þar.. ónei! Það er svo margt hægt að gera og sjá og fólk að hitta að ég bara held frekar að maður hafi ekki nægan tíma til þess alls ef eitthvað er!

Svo kveð ég ykkur bara með sojalatte í hönd og segi..
Je t'aime mes dames et monsieurs!!
24. janúar 2008 klukkan 17:26
Gunnhildur Árnadóttir
6 athugasemdir
10janúar

VÚHÚHÚÚÚÚÚ!!

TILKYNNING TILKYNNING!
Snillipinnarnir Ólöf og Krissi hafa ákveðið að koma og heimsækja mig um helgina!
Þar af leiðandi kalla ég á alla snillipinna Akureyrar að koma og sýna þeim what it's all about!!!
Djammið á Akureyri verður að sýna sig og sanna fyrir þessum Reykjavíkurtúttum!!!
Eru ekki allir með?
Partý á Útsteini á laugardagskvöldið og opið fyrir tillögur um föstudagskvöldið!!
Allir sem vilja vera með... VERA MEÐ
Og þeir sem ekki vilja vera með.... ERU EKKI VINIR MÍNIR
TAKK FYRIR TAKK
SJÁUMST!!!

10. janúar 2008 klukkan 00:39
Gunnhildur Árnadóttir
7 athugasemdir
02janúar

60 spurningar um árið 2007

Þessum spurningum stal ég af síðunni hennar Lísu... fannst þær svolítið sniðugar...

 

Á árinu 2007....


1-Did you kiss anyone?
já ... reyndar gerði ég það

2-Did you date anyone?
jább.. svona smá

3-Did have someone to kiss when the ball dropped?
Núna eða í fyrra? o jæja... skiptir svosem ekki máli hvorteðer, því svarið er nei

4. Did you lose any friends?

Nei, sem betur fer ekki... En sakna samt nokkurra sem eru langt í burtu

5-Did you gain any friends?
Alveg fullt fullt fullt af yndislegu Chicago fólki...

6-Did you do something new?
Já fullt.. fór í skíðaferð til Kanada, Keyrði mörgþúsund kílómetra fram og til baka til Flórída fyrir Spring break, fór til austurríkis alein yfir helgi, vann sem hjúkka á slysadeildinni og margt fleira nýtt og spennandi

7-Did anyone important to you die?
Ekki á þessu ári nei... skemmtileg tilbreyting..

8- Did you change at all?

Já, ég held ég hafi breyst alveg þónokkuð úti í Chicago. Kom ef til vill heim aðeins önnur manneskja en ég fór út... vonandi samt á góðan hátt!

9-Are you happy with the year over all?
Já, það er ég! Heldur betur!

10-Whats the best thing that happened to you ?
Chicago, slysó, vinir mínir...

11-Are you happy the years almost over?
Þegar þetta er skrifað, þá er árið nú barasta alveg búið.. Og ég er bara nokkuð sátt við það. Styttist alltaf meira í útskrift og svona..

12- Are you going to do anything different next year?
Ætli ég neyðist ekki til þess, svona þegar maður er að útskrifast og svona...!

13-Do you think 2008 will be a better year then 2007?
The only way is up, er það ekki?

14-Did you lose your virginity in 2007?
nei..

15-How many things did you screw up in 2007?
Uuuuuhhh... ekkert svona sem ég sé eftir sérstaklega held ég...

16-Did you go to a concert?
Já, fór að sjá Red Hot Chili Peppers og Gnarls Barkley saman á tónleikum. Þeir voru æði!

17-Did you go to any parties?
þó nokkur, já!

18-Did you go on any summer vacations?
Já, fór til ungverjalands og austurríkis. Ungverjalands að hitta pabba, en til Austurríkis til að hitta Stefan.

19-Did you lie to your parents?
nei.

20-Did you get into a fight?
bara með orðum, ekkert líkamlegt.

21-Did you leave the country?
já, var meira að segja næstum helming þess í öðru landi en íslandi! OG fór í sumarfrí til útlanda!

22-Did you have a good birthday?
Já, átti alveg hreint YNDISLEGA afmælisHELGI! Partý og kökuboð.. góðir gestir og gaman!

23-Did anyone in your family get married?
neibb, ekki nema það hafi gleymst að segja mér frá því..

24-Did you grow?
Allavega ekki á lengdina, held ég...

25-Did you do something you told yourself you would never do?
Já, alveg án EFA!

26-Who do you think you were on the phone with the most?
Fyrrihluta árs: Gerður frænka. Seinnihluta árs: Ólöf

27-Did anyone sing to you?
ekki svo ég muni...

28-Did you sing to anyone?
nei.. en með öðrum, já...

29-Did anyone tell you they loved you?
jább

30-Did you ever go to the hospital?
já oft, til að fara í vinnuna... en ekki ég sjálf þannig.. bara til heimilislæknis

31-What did you drink and eat the most?
the most? hmm... ef ég á að nefna eitthvað ... ábyggilega jafntefli á milli ristaðs brauðs og sushi.... og kókómjólk, kaffi og vatn..

32-Did you change your top at least 8 times?
huh?

33-Did you play sports on a team?
ónei

34-Did you change your default at least 20 times?
neibb

35-Did you get a tattoo?
já, as a matter of fact

36-Did you vote?
nei, því miður.. ég reyndi.. en komst svo að því að ræðismaður íslands í Chicago er til húsa í southside chicago.. í 3 klukkutíma lestarferð frá þeim stasem ég bjó á.. þannig að letin (ásamt dass af almennri skynsemi) réði því að ég kaus ekki!

37-Are you going to make a new years resolution?
nei, geri það sjaldnast....

38-Did you stick to your new years resolution from last year?
held ég hafi ekkert gert svoleiðis síðast...


39- Hvar varst þú þegar að 2007 gekk í garð?

ég var í áramótapartýi í Portland, Oregon, með Jónasi frænda og Tabithu konunni hans



40- Hvernig var hjúskaparstaðan á Valentínusardaginn?


Jahh.. flókið að svara.. en ég fékk allavegana valentínusarkort frá einhverjum sem skipti mig máli....;)



41- Varstu í skóla á árinu?


Já, meiraðsegja tveimur.. North Park og HA



42- Hvar varstu að vinna?


Barnapía fyrir Axel Örn fyrrihluta árs og svo verið á Slysó síðan :)



43- Þurftirðu að hafa samband við lögreglum eða hún samband við þig?


Já... þurft að hafa samskipti við lögregluna í gegnum vinnuna og svo núna á næstsíðasta degi ársins þegar ég mætti þjófum á leið út úr húsinu mínu með matinn minn í fanginu...



44- Verslaðirðu eitthvað sem er verðmætara en 50.000 kr?


uuuu.... nei.. ekkert eitt stakt.. en flugin mín tvö heim frá Ameríku... Chicago-Boston og Boston-Ísland kostuðu samtals meira en 50.000



45- Fluttirðu eitthvert?
Frá Chicago til Akureyrar og frá Ráðhústorgi í Skarðshlíð 


46- Stundaðir fjárhættuspil?
nei..

47- Byrjaðir eða hættir með einhverjum/einhverri?
Já.. bæði

48- Varstu oft ölvaður/ölvuð?
svona nokkrum sinnum.. ekkert alvarlegt...

49- Hvar býrðu núna?
Skarðshlíð 46, Akureyri

50- Uppáhalds stundin þín á árinu?
Þær hafa verið margar... Skíði í Kanada, með mömmu og pabba á Flórída,  Daytona Beach í Spring Break, góðar stundir með Dino, Ungverjaland með pabba, Austurríki hjá Stefan, gaman með góðum vinum á íslandi...

51- Hafa einhverjir bæst við fjölskylduna þína?
bara vina-fjölskylduna mína ef svo má kalla... með litlu börnunum þeirra Kollu, Svenna og Evu, Elfu,. Ernu og fleirum...

56- Hver var versti mánuðurinn þinn?
það var nú enginn neitt slæmur sko!

57- Hvaða tónlist einkenndi 2007 frá þínu sjónarhorni?
Amerísk R'n'B og rapp tónlist... haha...

58- Hverjir hafa verið þínir aðal drykkjufélagar á árinu?
Það hefur verið fjölbreytt og alþjóðlegt lið.... ekki hægt að nefna einhverja nokkra

59- Nýjir bestu vinir?
Já.. fullt af þeim...

60- Uppáhalds djammið þitt?
Spring Break með Stefan í Flórída.. og svo aftur með Stefan í Austurríki.. og svo mörg mörg önnur skemmtileg! úff.. erfitt að velja!!!

Jæja, þá er það komið!!
Vonandi eruð þið margs fróðari eftir þennan lestur...


GLEÐILEGT NÝTT ÁR ÖLL SAMAN!!
02. janúar 2008 klukkan 01:25
Gunnhildur Árnadóttir
4 athugasemdir
18desember

Hilsner Pilsner

Jæja pæjur og gæjar
Ég er á næturvakt, hress sem fress og spræk sem lækur....
Ætlaði bara að segja ykkur að það styttist í að ég komi í borgina...
Aðeins tveir dagar... samt eiginlega bara einn og hálfur!
Ég kem á miðvikudaginn og Ólöf ætlar að sækja mig út á flugvöll, þessi elska.
Líka hæg heimatökin hjá henni og stutt út á flugvöll!
Þannig að þið sem viljið hitta mig, endilega farið að panta tíma;)
Ástarjólakveðjur
Gunnsa jólaálfur
18. desember 2007 klukkan 04:51
Gunnhildur Árnadóttir
1 athugasemd
09desember

Prófalesturs-flótti... veruleikafirring...

Eins og hún Ólöf nefndi svo skemmtilega í kommenti við síðustu færslu, þá eyði ég tímanum mínum núna í prófatörninni í margt verra en að blogga... svona fyrst ég er hvort eð er ekkert að læra! Ég finn mér ástæðu til að hringja í ótrúlegasta fólk og blaðra í lengri tíma um allt og ekki neitt... svona til að sleppa við lærdóminn.
Þannig að núna, á kostnað eins símtals til hennar, ákvað ég að blogga sem snöggvast.

Ég er búin í tveimur prófum. Barnahjúkrun og Bráðahjúkrun. Barnahjúkrunin gekk bara furðu vel, sérstaklega miðað við það að ég fékk mígrenikast (annað af þeim tveimur sirka sem ég fæ Á ÁRI) og gubbaði og  gubbaði ansi hressilega... Nógu duglega að ég lét óléttu stelpuna í næsta herbergi verða óglatt líka... og hún er HÆTT í morgunógleðinni... hehe... mmmmmm... En ég náði þar af leiðandi ekki að klára að lesa allt fyrir þetta próf, en held ég bara hafi gert þetta nokkuð vel engu að síður.
En bráðahjúkrunin gekk nú betur. Annað væri nú ekki hægt, svona þegar maður vinnur á slysadeild. En sumar spurningarnar voru ansi svínslegar og ég bara gat ekki séð hvernig þær gátu tengst klínískri bráðahjúkrun, en spurningar eins og "hvað voru margar líffæragjafir á íslandi á árunum 1992-2002?"... held að það deyji enginn á ambulansinum hjá mér ef ég get ekki svarað þessari spurningu... Finnst nú aðeins mikilvægara að muna hvað má gefa manneskju í hjartastoppi mikið af adrenalíni... hvað finnst ykkur? En allar þessar "gleðispurningar" voru allar í hrúgu í byrjuninni á prófinu og ég fékk nett taugaáfall. En það sem var mér efst í huga var ekki það að ég gæti hugsanlega fallið. Ónei... ég hugsaði með mér "Ég get ekki mætt aftur í vinnuna ef ég fæ undir sjö í þessu prófi... jiiii..." Ég var strax farin að ímynda mér skömmina yfir því að fá lága einkunn í bráðahjúkrun eftir að hafa unnið á slysó síðan í maí! haha... En svo voru þetta bara rétt fyrstu spurningarnar og þær sem á eftir komu miklu auðveldari og ég held ég hafa bara "eisað " þetta próf ef maður slettir aðeins... (To ACE a test... ganga rosa vel....;))


Núna er ég aftur á móti að læra fyrir MUN leiðinlegri próf. Þau eru heilsugæsluhjúkrun og stjórnun. Þessi stjórnun er nú bara algjörlega ekki minn cup of tea... úfff... pant ekki stjórna neinu! EVER! hehe... Leiðinlegt! Takmarkið verður að ná fimm í því prófi... það verður afrek! Eða.. samkvæmt nýju fyrirgjafar-reglunum í háskólanum, þá dugir víst 4,75 til að ná. Það er takmarkið! Það væri nú samt leiðinlegt ef ég eyðilegg fallegu einkunnirnar mínar sem ég hef fengið hingað til. Það lítur allt út fyrir að ég muni útskrifast úr þessum skóla (ef Guð lofar) með fyrstu einkunn... sem mér finnst mjög gaman. Ég mun bara gera mitt besta.. segjum það bara.

Svo er ég að fara í leikhús í kvöld með stelpunum, Dittu, Hrafnhhildi og Þórnýju. Við erum að fara að sjá Ökutíma, með tónlist eftir Lay Low. Hlakka mikið til. Þó maður eigi það nú varla skilið að taka sér læri-pásu... Æji þetta reddast allt!

Var að ná í tónlist sem ég og Stefan hlustuðum á í road-trippinu okkar niður til Flórída. Hann var búinn að búa til fullt af playlistum með allskonar tónlist og þegar við keyrðum í gegnum suðurríkin Kentucky, Tennessee og Georgia, þá blöstuðum við kántrídiskana og sungum með af fullum krafti til að halda okkur vakandi! Haha.. ég fær þvílíkt flassbakk af því að hlusta á þessa tónlist. Ég ætla að henda hingað inn texta að einu laginu sem okkur þótti æði... og finnst ennþá. Það er með Trace Adkins og heitir Ladies love country boys.... Ég mæli með því að þið náið ykkur í það og hlustið á það... Ég get líka sent hverjum sem það vill í gegnum msn...;) hehehe Snilldartexti.. endilega lesið!

She grew up in the city in a little subdivision
Her daddy wore a tie, mama never fried a chicken
Ballet, straight-As, most likely to succeed
They bought her a car after graduation
Sent her down South for some higher education
Put her on the fast track to a law degree

Now shes coming home to visit
Holding the hand of a wild-eyed boy

With a farmers tan

Shes riding in the middle of his pickup truck
Blaring Charlie Daniels, yelling, Turn it up!
They raised her up a lady but theres one thing
They couldnt avoid
Ladies love country boys

You know mamas and daddies want better for their daughters
Hope theyll settle down with a doctor or a lawyer
And their uptown, ball gown, hand-me-down royalty

They never understand why their princess falls
For some camouflage britches and a southern-boy-drawl

Or why shes riding in the middle of a pickup truck
Blaring Hank Jr., yelling, Turn it up!
They raised her up a lady but theres one thing
They couldnt avoid
Ladies love country boys

You can train em, you can try to teach em
Right from wrong but its still gonna turn em on

And they go riding in the middle of a pickup truck
Blaring Lynyrd Skynyrd, yelling, Turn it up!
You can raise her up a lady but theres one thing
You just cant avoid
Ladies love country boys
They love us country boys



Ætli mamma yrði ekki ánægð ef ég kæmi með einn svona heim? Ha? hehehehe!
En talandi um mömmu... hún, ásamt fleirum hafa verið að biðja mig um að setja jólagjafaóskalista hérna inn... ég bara var ekki farin að spá svona langt fram í tímann... finnst jólin ennþá svo langt í burtu... því ég hef ekki tíma til að plana þau, þá koma þau ekki! Þannig er mín rökhugsun.. hehe... svo skellur þetta allt á eftir síðasta prófið!! Believe you me! En hérna koma allavega nokkrir hlutir sem mig langar í...
*kaffikvörn eins og systa á.. sem er hægt að stilla fínleika  OG bollafjölda...
*Eva Solo mjólkur og sykurkar-sett.. og eiginlega allt Eva Solo sem viðkemur kaffi (en ég á kaffiuppáhellingarkönnuna og hitabrúsann...)
*Nýja geisladiskinn með Hjálmum
*Nýja myndavél (mín er að gefa upp öndina... RIP)
*DVD-spilara (má vera eins mikið drasl og hægt er.. 2000kall í europris... FLOTT)
*Stóran, mjúkan kinnalitabursta... t.d. úr body shop

Heyrðu já, svo er ég búin að breyta plönunum um Chicago ferð... Búin að kaupa jólapakka Flugleiða og ætla að nota hann í flug til Chi-town í mars. Það kom betur út í sambandi við lokaverkefnisvinnuna okkar Dittu. Þá ætlum við báðar að skella okkur í utanlandsferðir, fá smá frí frá hvor annarri og koma hressar og endurnærðar aftur í lokasprettinn. Og þá styttist bara í útskrift. Það er svo stutt eftir! Þetta núna er síðasta prófatörnin mín.. engin próf eftir jól.. þannig að það verður eintóm gleði að klára núna um jólin!
En já.. núna er ég bara farin að láta mig dreyma.....
Best að hætta því og fara að læra...
Brrr...Heilsugæsluhjúkrun... gubbbb....
jæja...

Afsakið bloggletina í mér upp á síðkastið.

Knús og kossar
Gunnsa
09. desember 2007 klukkan 14:35
Gunnhildur Árnadóttir
7 athugasemdir
10nóvember

Oft var þörf....

Ojæja... Þegar mamma er farin að hafa áhyggjur að missa sambandið við mig og frétta aldrei neitt af mér og Alfa er farin að hóta að heimsækja mig aldrei framar, þá held ég að kominn sé tími á að henda smá fréttum hérna inn... Hvað finnst ykkur?

Ég hef bara ekki fundið fyrir þörf til að skrifa hérna inn í lengri tíma. Það gerist nefnilega bara þegar mér finnst eitthvað fréttnæmt hafa átt sér stað í mínu lífi. Þar af leiðandi getið þið giskað á hversu spennandi líf mitt hefur verið upp á síðkastið.. haha.. já... EINMITT!!

Það gengur bara allt sinn vanagang með skóla og vinnu og heimaverkefnum og kvíðaköstum á stöku stað yfir að vera ekki nógu dugleg. Einmitt í dag var ég heltekin af einu slíku og dreif mig upp í skóla til að reyna að rumpa af ritgerð sem ég á skila í Bráðahjúkrun. Hún fjallar um móttöku og hjúkrun brunasjúklinga. Svona kvíðaköst eru ágætis drifkraftur og mér miðar ágætlega áfram. Stefnan er að klára fyrir miðnætti annað kvöld.

Ég er reyndar að fara á 12 tíma næturvakt á slysó í nótt, en þar sem við erum 3 á vakt og ég hef fulla trú á siðprýði og slysavörnum Akureyringa, vona ég að ég nái að skrifa eitthvað í ritgerðinni í nótt. En það er bara svona "best case scenario". Maður þarf auðvitað að vera eins og skátarnir, við öllu viðbúinn.

Svo er ég að fara að byrja sem sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum. Tók að mér að hjálpa til við laugardagsopnanir á Laut sem er athvarf fyrir geðfatlaða hér í bæ. Hlakka mjög til að byrja, en fyrsta vaktin verður laugardaginn 24. nóvember.

Þann 17. nóvember, JÁ, afmælisdaginn minn, eru ungir jafnaðarmann úr Reykjavík og nágrenni að fara að heiðra okkur með nærveru sinni og ætlum við í UJA af því tilefni að efna til óvissuferðar og einhverrar gleði um kvöldið. Mikil tilhlökkun til þess. En þar sem að ég er þar af leiðandi ekki að fara að halda afmælispartý, ákvað ég þess í stað að hafa frekar kökuboð á sunnudeginum þar sem fólk gæti kíkt í þynnkunni og fengið sér kökusneið og kaffi í annars illa upplagða maga...;) Allir sem þetta lesa eru hér með boðnir!

Annars er hæst á baugi hjá mér núna að reyna að skipuleggja heimsókn til Chicago í janúar. Já, ég bara get þetta ekki lengur. Er með "heimþrá" á hæsta stigi og langar meira en allt að kíkja á krakkana og borgina sem ég sakna svo sárt. Ef af ferðinni verður (sem ég er nú nokkuð viss um..), þá er lok janúar áætlað ferðatímabil. Hugsanlega verði gert stutt stopp hjá henni Joönnu í New York, hver veit!?! Þannig að þessarar ferðar er beðið með mikilli eftirvæntingu. Ég hringdi í Dino og nefndi þetta við hann. Hann skammaði mig fyrir að gera sig svona spenntan og sagði svo "see you in a month!". Ég hváði, en þá útskýrði hann fyrir mér að í raun væri bara einn mánuður þangað til í janúar, því í rauninni er einungis desember sem skilur að nóvember og janúar.. semsagt.. in a month! haha... Þá fattaði ég hvað tíminn líður ÓGEÐSLEGA hratt.. og það verða komin jól áður en maður veit af!

En fyrst.. PRÓF!! brrrrrrrrrr.. vil helst ekki hugsa um þennan ófögnuð! Og hvað þá lokaverkefnið... (sem verður þó OFUR skemmtilegt, því við erum búnar að ákveða það, ég og Ditta:)), já, eða útskriftina, sem nálgast óðfluga! Spurningin ægilega "hvað ætlarðu svo að gera þegar þú útskrifast?" heyrist æ oftar og ég bið hér með alla lesendur þessa bloggs að vinsamlegast HÆTTA AÐ SPURJA MIG AÐ ÞESSU!!!


ÉG VEIT ÞAÐ EKKKIIIIIIIII!!!!!!!!!!!!!!!


Takk og bless í bili! Vonandi þetta friðþægi þá sem hæst hafa kvartað undan bloggleysi mínu. Kannski ég ætti bara að hætta þessu? Hvað segið þið um það?
10. nóvember 2007 klukkan 17:22
Gunnhildur Árnadóttir
5 athugasemdir
10október

Ein stutt....

Jæja.. kominn tími á smá blogg eða hvað? Ég hef samt ENGAN tíma, þannig að ég ætla rétt að punkta niður svona það helsta sem á daga mína hefur drifið upp á síðkastið!
*Verknám á vökudeild Landspítalans. Mjög gaman!
*Eyddi tveimur og hálfri viku í borginni og fór út að borða og fékk mér gott kaffi oftar en ég á að venjast!
*Eyddi quality time með fjölskyldu og vinum
*Keyrði norður og var mætt í vinnuna klukkutíma seinna.
*Vann alla helgina.. JEIJ
*Byrjuð í verknámi á gjörgæsludeild FSA, verð þar bara í viku, þannig að ég er mest bara að horfa á og fylgjast með.
*Næsta vika verður svo verknám á skurðdeild FSA sem felst í meira áhorfi og glápi..
*Er að renna á rassinn með að gera ritgerð í barnahjúkrun sem á að skilast næstkomandi mánudag. Nennir einhver að gefa mér vítamínsprautu svo ég drífi í þessu?
*Er að fara í stelpuafmæli til Völu vinkonu á föstudaginn. Það verður haldið í sumarbústað á Illugastöðum þar sem við munum gista og hafa það gott í heitapottinum og drekka mojitos og kjafta frameftir nóttu. Það verður gaman.
*Svo næstu helgi eftir það verður árshátíð hjá FSA. Mig langar. Er enn að bíða eftir svari við því hvort ég fæ frí í vinnunni eður ei. Spennandi það
*Er með hálfgerða "heimþrá" til Chicago.. sérstaklega svona þegar maður þarf að skafa af bílrúðunni sinni á morgnana í byrjun október! (Þar er semsagt 33 stiga hiti. Fékk að heyra það þegar ég talaði við Dino í símann í fyrradag!)
*Er annars bara hress og kát og líður vel í litla herberginu mínu í Skarðshlíðinni. Allir að kíkja í kaffi við tækifæri!
Knús og kossar.
Gunnsa

10. október 2007 klukkan 17:45
Gunnhildur Árnadóttir
6 athugasemdir
19september

fyllið í eyðurnar!!

Ég heiti Gunnhildur _____________ og ég er _____ ára gömul stelpa. Ég ólst upp í __________ og svo í ___________, en núna bý ég á ____________. Í fyrra bjó ég í __________ í __________ og var skiptinemi í _____________.  Besti vinur minn þar heitir _________.
Skólinn minn hérna heima heitir ___________ og ég útskrifast eftir__________ ár. Þá verð ég _________.
Ég á eina __________ sem býr í ____________. Hún á _____ börn.
Ég hef lært á tvö hljóðfæri um ævina. Þau eru ___________ og ___________.
Uppáhaldsmaturinn minn er _________ og mér finnst rosa gaman að búa svoleiðis til.
Ég hlusta mest á ________ tónlist, sem flestum vinum mínum finnst ekkert rosa skemmtileg.
Ég var að vinna í sumar á ____________ og fannst það _____________.
En núna er ég í _________ og er í verknámi á ___________.
Ég drekk allt of mikið af _________.
Mér finnst rosa gaman að ferðast og er nýkomin heim frá __________ og ___________ þar sem ég var að _____________ og mér fannst það rosalega ______________.

Og getiði nú í eyðurnar!!!

19. september 2007 klukkan 21:31
Gunnhildur Árnadóttir
9 athugasemdir
04september

ísland

komin heim. aftur í háskóla akureyrar eftir næstum 1 og hálft ár í burtu!! Skrítið, mjööög skrítið!
04. september 2007 klukkan 10:57
Gunnhildur Árnadóttir
7 athugasemdir

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...