31ágúst
hæhæ!
þá er ég komin aftur til Budapest en í þetta skiptið er ég hjá Barbi vinkonu minni. Kom hingað í gær og fer í nótt, eða snemma í fyrramálið. Lendi á íslandi klukkan tvö á morgun. Vonandi kemst ég eitthvað á tjútt í borginni, þannig að látið í ykkur heyra ef þið viljið panta pláss;) tíhíhí...
Nei, svona í alvöru, endilega verið í bandi ef það er eitthvað skemmtilegt að gerast á morgun, ég væri meira en til í eitthvað skemmtilegt!
Annars þá er ég á leiðinni á tjútt hérna í Buda í kvöld og verð því vonandi sofandi í flugvélunum alla leiðina til íslands!
Sé ykkur bráðum! Knús og kossar
Gunnsa
26ágúst
Jæja, þá er ég komin til hans pabba í sumarhúsið okkar.
Algjört yndi. Veðrið alveg frábært og hér er gott að vera.
Það tók ekki nema 2 og hálfan tíma að keyra hingað frá Graz, þannig að það er alveg tilvalinn staður til að skreppa héðan og skoða. Mikið rosalega var ég hrifin af borginni. Ég fór í skoðunarferðir með Stefan út um alla borg í gær og þvílíka fegurðin.. Algjört æði!
Get ekki sett inn myndir í augnarblikinu, því að ég er ekki nettengd á fartölvunni, heldur bara á borðtölvu sem við erum með hérna og ég gleymdi því miður snúrunni sem tengir myndavélina í svoleiðis tölvur. Er orðin svo vön lúxusnum að geta bara stungið Sony minniskortinu beint inn í Sony fartölvuna mína og notið myndanna úr Sony myndavélinni minni... (ég ætti að fá borgað fyrir þessa auglýsingu hérna.. haha)
En ég lofa að hlaða inn myndum við tækifæri.
Núna taka við nokkrir dagar í pjúra afslöppun. Það verður yndislegt. Það var reynt að kalla mig út í vinnu í dag, það var ósköp gott að geta sagt með góðri samvisku "ég kemst ekki.. er í útlöndum":)
Knús og kossar úr sveitinni í ungverjalandi!
25ágúst
Jæja, þá er ég komin heim til Stefans. Hingað komst ég í gærkvöldi eftir að hafa keyrt frá Budapest í gegnum ömurlegar vegaframkvæmdir, en komst þó klakklaust á leiðarenda. Stefan býr einn í geggjaðri íbúð og beið að sjálfsögðu með kaldan bjór í ísskápnum handa mér þegar ég kom.
Ég var líka með smá glaðning handa honum og ætla að skella inn smá myndaseríu af því þegar Stefan smakkaði íslenskt brennivín!



Hahahaha hann var nú ekkert alltof hrifinn í fyrstu, en tók engu ad sídur nokkra sopa til vidbótar þegar lída tók á kvöldid!
En jæja, ég ætla að fara að vekja hann núna.. það er komið fram yfir hádegi og ég er löngu vöknuð, believe it or not og búin að fara í sturtu og þurrka hárið og borða morgunmat og allt. Já, OG blogga!
Eigið þið yndislegan dag.. ég veit það á eftir að vera gaman hjá mér!
Knús og kossar,
Gunnsa
24ágúst
Góða nótt! Ég er að fara að sofa núna eftir yndislegan dag. Svaf út, fór svo um hádegið aðeins á röltið niðri í bæ áður en ég fór og hitti Matyás sem var með mér í skólanum í Debrecen, í hádegismat á Margit eyju. Það var æði og gaman að hitta hann og við fengum æðislegan hádegismat. Svo fór ég og verslaði smá í West End City Center og svo fórum við heim. Hresstum okkur aðeins við og kíktum svo út með frænda hans Levente, á open-air pleis á margit sziget og svo fórum við á annan stað sem heitir Morrison´s. Það var mjög gaman.
Á morgun mun ég svo keyra til Graz og hitta Stefan minn þar. Hlakka ekkert smá til!
Knús og kossar heim
Gunnsa
22ágúst
... Engin takmörk! Þær hafa bitið mig UNDIR tána!! Nú er nóg komið, ég segi þessum helvítum stríð á hendur!!
Annars er ég búin að eiga yndislegan dag. Svaf alveg út. Fékk frábæran ungverskan mat í hádegismat, grizgáluska súpu og rizibizi, ásamt steiktu svínakjöti, tartár sósu og uborka sálatot!! Nammi nammi nammi!
Svo fórum ég og Levente á stúfana. Fórum upp í Buda vár, sem er kastalahverfið á Budahæðinni. Þar fórum við í Matyás témplom sem er fallegasta kirkja í heimigeimi! Þar sáum við líka hauskúpuna af eiginkonu föður hans Matyásar, sem ég veit svosem ekki hvað er að gera þarna.
En þarna er hún í öllu sínu veldi, ef þið hafið áhuga:

Svo fórum við og skoðuðum útsýnið, sem var MAGNAÐ eins og endranær



BJÚTÍFÚL!!!!!!
En svo skoðuðum við okkur meira um á kastalasvæðinu og ég reyndi að vera listræn í mér og tók fullt af svarthvítum myndum...




þið afsakið að ég hætti að nenna að minnka myndirnar.. það er svo mikið vesen þannig að þær haldi áfram að vera í réttum hlutföllum........
En svo fórum við labbandi yfir The Chain Bridge og niður í bæ. Settumst þar niður á kaffihús og hvíldum lúin bein. Svo fórum við heim og fengum okkur kvöldmat og svo kíktum við aðeins út eftir kvöldmat með systur hans, henni Eniko og fórum á Romkért, sem er æðislegur utandyrastaður sem ég hef ábyggilega sagt mörgum frá sem lesa þetta blogg.... Hef farið þangað oft áður og alltaf jafn æðislegt. Í kvöld var engin undantekning. Núna var ég að koma heim og er að fara að lúlla mér. Á morgun fer ég að hitta Matyás sem var með mér i skólanum í Debrecen. Hann ætlar að bjóða mér í hádegismát á Margit Sziget sem er eyja í Dónánni. Ég get ekki beðið.
Knús og kossar
Gunnsa
22ágúst
í gærkvöldi var ég að segja Levente og systur hans hörmungarsögur af mér og samskiptum mínum við moskítóflugur í gegnum tíðina. Ekki fallegt. Og þau sögðu bæði að ég væri nú heppin þetta sumarið því það væru bara örfáar moskítóflugur í sumar, eiginlega engar.
Í stuttu máli, þá eru þessar örfáu flugur væntanlega ALLAR búnar að finna mig og gæða sér á mér... ´
á báðum fótum
þrisvar á hægri hendinni
og jafnvel framan á vinstri löngutöng!! Finn fyrir því í hvert skipti sem ég pikka á tölvuna!! djísus...
Hafa þær engin takmörk?
21ágúst
Jæja, þá er maður kominn á leiðarenda. Eða allavega fyrsta leiðarenda.. sem er þá væntanlega ekki endi, heldur bara svona "pitstop".... hehe.
Ég fór samt ekkert frá Köben fyrr en ég var búin að finna mér skó, nei auðvitað ekki! Fann mér þessi dýrindis leðurstígvél, seinasta parið, akkúrat í minni stærð á aðeins 199 DKK.. kjarakaup!
Ég var samt eitthvað svo stressuð að ég flýtti mér ekki nógu hægt í köben og var komin allltof snemma aftur upp á Kastrup... þurfti að bíða heillengi eftir vélinni. En það var í gúddí, ég bara fékk mér sushi og hvítvínsglas og "tjillaði"...
Á flugvellinum í Budapest tók Levente á móti mér, brosandi sem endranær og fór með mig heim til sín. Hann býr með mömmu sinni og systur í lítilli íbúð á besta stað í borginni, maður sér niður að Margit Sziget og yfir alla Gellért hæðina og á veturnar sést víst í parlamentið.. en núna er of mikið af laufum á trjánum. Við erum víst í næstu götu við herra prime minister of hungary hvorki meira né minna. En ungverjar eru yndislegt fólk. Systir hans Levente gekk úr rúmi fyrir mig og sefur núna (og ég með samviskubit) uppi í rúmi hjá mömmu sinni, en rúmið hennar er í stofunni. Eldhúsið er þar sem svalirnar eru, var áður í herberginu hans Levente, en mamma hans vildi endilega að hann fengi sitt eigið herbergi, þannig að hún lét flytja eldhúsið og fórnaði svölunum. Svona er nægjusemi ungverjanna... held að ýmsir íslendingar væru nú löngu fluttir í aðra íbúð.. haha! En ég ætla að fara að lúlla mér núna.. læt ykkur vita meira um mig á morgun. Knús og kossar
Og nú bölva ég þeim sem kom þeirri hugmynd í hausinn á mér að downloada Grey´s anatomy áður en ég færi út svo ég gæti horft í vélinni... jújú, frábær hugmynd, en núna er ég SJÚK í þessa þætti! Þeir eru ÆÐI!!!!!!!úfff!! Dr. McDreamy... úfffffffffffffffffff!
Góða nótt, eða... jó éjsakát!
21ágúst
Jæja, þá er maður staddur í kaupmannahöfn! Búin að þræða strikið svona lauslega upp að sirka miðju... og svo hliðargötur og stræti hingað og þangað og er komin með blöðru á tána.. en ekki búin að ná að versla nema einar buxur og tvo klúta.. lélegur árangur það! Eða það finnst mér...
Búin að gera svona það helsta, sjá rónana á ráðhúspladsinu, stika strikið, fá mér kaffi á baresso og pölse og sjokolademælk og sit svo með en stor carlsberg og hvíli lúin bein eftir a job well done!
Veðrið er ekkert æðislegt.. 18 stiga hiti en engin sól og rigningardropar svona við og við.. But who cares!
Svo tek ég lestina aftur upp á Kastrup eftir klukkutíma, og þá er það höngarí beibí!

21ágúst
jæja, þá er ég komin í flugstöð Leifs Eiríkssonar, bíð eftir fluginu mínu. Ég flýg fyrst til Köben, þar sem ég stoppa í 8 tíma og ætla mér nú aðeins að skreppa á Ströget og kannski kíkja í nokkrar sjoppur.. hver veit? Svo liggur leiðin til Budapest þar sem ég lendi klukkan 10 í kvöld. Þar tekur Levente, vinur minn úr skólanum í Chicago á móti mér og ég gisti hjá honum í 3 nætur. Svo tek ég bílaleigubíl á föstudaginn og keyri til Graz í Austurríki og heimsæki hann Stefan minn og ég get ekki beðið!

Ef þið munið ekki, þá var það Stefan sem fór með mér í spring break road trippið úti! Jeijjj!!
En eftir helgi hjá Stefan, keyri ég til hans pabba míns sem er í sumarhúsinu okkar as we speak. Þar mun ég slappa af í nokkra daga, áður en ég kem heim 1. september!
Hlakka til að sjá ykkur öll aftur en mun vonandi lítið sakna ykkar í þessa tíu daga.. hahaha...
Afslöppun, at last!!;)
16ágúst
Á þessum síðustu og verstu þegar dyraverðir skemmtistaða eru meira að segja hættir að spyrja mann um skilríki, þá er alltaf skemmtileg tilbreyting í hversdaginn að vera spurður í sundi hvort maður sé ekki örugglega ORÐINN 15 ÁRA!!!??!