Vinkona mín var að hjálpa mér að pakka í dag... og þegar hún kallaði til mín af baðinu í dag og sagði "hvorn tannburstann áttu?" og ég svaraði "þennan fjólubláa... oj, þú mátt henda hinum"... þá óraði mig ekki fyrir því að ógeðslegi vibbatannburstinn sem var skilinn eftir hérna af fyrri leigjendum fyrir svona 5 mánuðum síðan og er búinn að standa inni á baði og rykfalla og baða sig í sýklaflóði væri...........
LÍKA FJÓLUBLÁR!!og jafnvel even more so heldur en minn
sem núna situr væntanlega úti í ruslagámi
og saknar mín
En ég á annars bestu vinkonur í heimi sem hjálpuðu mér óendanlega mikið í dag að pakka og flytja og færa og bera. Berglind og Ásta.. you are lifesavers! Og ég lofa að segja ENGUM hver henti tannburstanum mínum.. ég kaupi bara nýjan í fyrramálið!
Og innan fárra klukkustunda mun hún Ólöf mín yfirgefa klakann í tvo mánuði til að fara að elda ofan í liðið sem gistir hótel Legoland... Ég sendi hana af stað með nesti og nýja skó í pakka (eða svona næstumþví), og knús og kossa í poka. Gangi þér rosa vel ástin mín og ég veit að þú munt sparka í danska rassa þarna! (a.k.a. kick some danish asssssssssss!) LOVJÚ
15. ágúst 2007 klukkan 02:31
Gunnhildur Árnadóttir 1 athugasemd
Annars er ég bara pirruð yfir því að það er verið að bjóða fólki vinnu á ónefndum skyndibitastað í reykjavík á hærri launum en ég fæ... Hvað er maður að þvælast í háskólanám? Það dugir bara að kunna að búa til burritos!
OUT!
13. ágúst 2007 klukkan 18:41
Gunnhildur Árnadóttir 1 athugasemd
Þrátt fyrir annars skítalág laun hjúkrunarfræðinga, ætla ég að leyfa mér að þakka spítalanum fyrir að borga mér hvorki meira né minna en 31.000 krónur í álag ofan á launin mín fyrir að hafa unnið á 17. júní. Það kalla ég sko hæ hó og jibbý jei! Í tilefni þessa, fór ég í Strax og keypti mér ost ofan á ristaða brauðið mitt. Slíkan munað á maður alla jafna auðvitað ekki að kaupa nema í Bónus og það helst bara einu sinni í mánuði. Keypti mér meira að segja hálft brauð til að rista undir ostinn... og sykurskerta kókómjólk. Þetta gerist ekki betra.
Fjarstýringin af sjónvarpinu mínu er búin að vera týnd í viku. Ég hef hana grunaða um að fela sig undir rúmi. Mér er alveg sama. Þetta breytir engu. Ekki það að ég standi núna upp og skipti um stöð "handvirkt". Ónei, ég bara sleppi því að horfa á sjónvarpið! Og hana nú.. gæti ekki verið meira sama!
Svo vil ég líka þakka Trick Daddy og Ludacris fyrir að búa til lagið Sugar sem gladdi mig í morgunsárið. Njótið.... http://youtube.com/watch?v=8jCbZU6SsmY (þetta er einhver furðuleg teiknimyndaútgáfa af myndbandi við lagið.. en "alvöru" myndbandið er ft. Lil Kim og mér finnst sú útgáfa bara alls ekki nógu skemmtileg. Þó er það gott við hana að maður sér Cee-Lo Green sniglast í bakgrunninum. En ykkur er eflaust alveg sama um það.)
Þá er ég farin að sofa. Over and out klukkan 08:43, miðvikudaginn 1. ágúst. (já, ég var á næturvakt.. gáfnaljós!)
01. ágúst 2007 klukkan 08:44
Gunnhildur Árnadóttir 6 athugasemdir
Ég veit að ég er öll í ógeðslegu myndunum þessa dagana, en ég varð að segja ykkur að: Einhverjum fugli fannst rosa sniðugt að fá NIÐURGANG á rúðuna á bílnum mínum og þakka ég honum KÆRLEGA fyrir það....!
26. júlí 2007 klukkan 23:36
Gunnhildur Árnadóttir 3 athugasemdir
Já, nú er ekki fjör á mínum bæ... Eitthvað sameiginlegt niðurfall fyrir íbúðina mína var stíflað, með þeim afleiðingum að það búbblaði alltaf upp úr sturtunni ef ég lét renna í eldhúsvaskinn og rennur svo djöfullega hægt niður úr sturtunni að mér er guðslifandi ómögulegt að fara í sturtur sem vara lengur en 5 mínútur. Ja, nema ég vilji láta fljóta útúr henni og yfir allt baðherbergisgólfið (sem svosem átti sér alveg stað um helgina, samt EKKI mér að kenna, heldur ofur-dofinni stelpu sem "tók ekkert eftir því að það var komið vatn upp Á KÁLFA"... nefni engin nöfn hérna.. hahaha) En ég allavega tók mig til og hringdi í kalla til að losa stífluna. Ég hringdi kl. 8 í morgun þegar ég var nýkomin af næturvakt. Þeir sögðust myndu hringja í mig einhvern tímann eftir hádegið. Fínt fínt hugsa ég og fer og legg mig. Korteri eftir að ég sofna... eða um klukkan 10, hringja þeir og segjast vera á leiðinni! Úff, ég þakkaði Guði fyrir að hafa þrifið allt hátt og lágt hérna í gær! Fór samt pínu hjá mér þegar þeir sögðust þurfa að færa ísskápinn.. hef ekki ennþá þorað að fara inn á bað og kíkja hvað þeir hafa getað grafið upp undir honum! En er það ekki bara mannlegt.. þrífur einhver ALLTAF undir ísskápnum hjá sér, ég bara spyr?! En eitthvað gengur þeim nú illa að losa þessa stíflu, því núna eru þeir búnir að basla við það í rúman einn og hálfan tíma og ég ekki ennþá farin að sofa eftir næturvaktina og rétt að renna í hádegi! Er að spá í að skella mér kannski bara í hádegismat með henni Berglindi minni og skilja kallana eftir í stífluveseninu!
En annars er það gaman af mér að frétta að ég varð þess heiðurs aðnjótandi að vera með henni Evu Dögg minni frá miðvikudegi til sunnudags og lofa að setja inn myndir af þessarri snilldarhelgi um leið og tækifæri gefst.
En núna eru pípararnir búnir og sögðu mér að þetta bara væri ekki að ganga.. og það yrði að rífa bara sturtuna í burtu og grafa þarna ofaní og allt væri bara stappstútfullt af skít og drullu... WASN´T ME!! En ég ætla að hringja í eigendur þessarar íbúðar áður en ég fer að panta lið í svoleiðis framkvæmdir.. haha..
En núna, klukkan hálf eitt ætla ég loksins að fara að leggja mig eftir næturvaktina. Takk fyrir mig og góða nótt/dag..eitthvað...
24. júlí 2007 klukkan 12:15
Gunnhildur Árnadóttir 5 athugasemdir
Ég er búin að vera þess heiðurs aðnjótandi að vera í návist fallegustu barna í heimi síðastliðna viku. Fyrst ber að nefna litla prinsinn þeira Svenna og Evu, sem kom í heiminn sunnudaginn fyrir viku kl 18:15. Ég fór auvitað beint úr vinnunni á mánudeginum upp á fæðingadeild og fékk að halda á gullmolanum! Til hamingju elsku Svenni og Eva! Hann er dýrðlegur!
Svo fékk ég á föstudaginn loksins að sjá prinsessuna hennar Kollu vinkonu sem kom í heiminn 7. júní s.l. Sú er að sjálfsögðu algjör sykurpúði og ég var svo heppin að fá að knúsa hana örlítið líka!
Svo komu systir mín og Rúnar með krakkana norður, því Árni Aðalsteinn var að keppa á N1 mótinu í fótbolta. Það var algjört aeði að fá þau í heimsókn og þau fengu að smakka á Sushi á la Gunnsa... Tilraun númer tvö
Svo fékk ég að eyða tíma með fallegu fraendsystkinunum mínum.. sem var alveg yndislegt!
Eru þau ekki falleg?
Svo er ég búin að vera í vinnunni á Te og Kaffi síðustu daga og finnst það bara rosa fínt! Er að aefa mig á fullu í kaffigerðinni og það gengur bara rosa vel...
Já... og svo er ég bara farin að hlakka rosalega til að hitta hana Evu Dögg mína, sem er að fara að sýna fötin sín á Listahátíð ungs fólks á Austurlandi, LungA. Ég mun keyra austur á Seyðisfjörð 18. júlí n.k. og sjá flottustu tískusýningu aldarinnar;) JEIJJJJJ!!!
Knús og kossar á ykkur öll!
09. júlí 2007 klukkan 18:28
Gunnhildur Árnadóttir 5 athugasemdir
Ég gerðist svo fræg að búa til sushi alein og sjálf í gærkvöldi. Ég er bara nokkuð sátt við útkomuna! Dæmið þið samt fyrir ykkur sjálf! Ég þorði ekki að slá um mig og bjóða fólki í mat, en ég nennti heldur ekki að borða þetta ein, þannig að ég bauð Selmu vinkonu minni að vera tilraunadýr hjá mér. Hún var bara nokkuð sátt við þann titill og ég sá ekki betur en að sushi-ið hafi runnið ljúflega ofan í hana! Svo kom Ásta og fékk að vera "afgangaklárari" og ég held barasta að hún hafi verið nokkuð sátt við það líka!:)
Ég meira að segja gerðist svo djörf að tempura-steikja smokkfisk.. maður verður nú að vera svolítið flottur á þessu, er það ekki?
Hvernig líst ykkur á? Mynduð þið koma í mat ef ég legg í þetta aftur?
30. júní 2007 klukkan 21:31
Gunnhildur Árnadóttir 6 athugasemdir
Jæja, er ekki kominn tími á að segja einhverjar fréttir af mér hérna á Akureyri?
Ég er búin að vera á fullu í vinnunni, var að vinna á slysó síðastliðna helgi, þegar voru bíladagar og tilheyrandi vitleysa hérna í bænum og endalaust mikið af vitleysingum að slasa sig! Því var gott að fá tveggja daga frí mánudag og þriðjudag og fá mömmu og pabba í heimsókn!
Ég eyddi fyrri parti mánudagsins í að taka upp úr seinustu töskunum (já, ekkert skrítið við það!!) og svo komu mamma og pabbi seinnipartinn. Þau komu með sænskum ættingjum okkar sem við fylgdum á gistiheimili út á Grenivík. Fórum svo og fengum okkur að borða og fórum svo að sofa.
Á þriðjudaginn þá fórum við á bæjarrölt, fórum á Te og Kaffi í hádeginu og keyrðum svo út á Hjalteyri þar sem við fengum okkur kaffi. Því næst fórum við á Árskógsströnd, þaðan sem við tókum ferjuna út í Hrísey. Þar fórum við í traktorstúr um eyjuna og fræddumst aðeins um sögu hennar og menningu. Það var alveg rosa skemmtilegt og ég auglýsi hér með eftir fólki sem langar að fara með mér einhverntímann í sumar út í Hrísey eins og eina nótt til að tjalda, fara í gönguferðir og út að borða á þennan líka fína veitingastað sem þau eru með þarna!
Í dag fóru svo mamma og pabbi í Mývatnssveitina með sænska anganum af fjölskyldunni á meðan ég bara dúllaði mér eitthvað hérna á Akureyri og fór svo í vinnuna klukkan 3. Var í vinnunni til 11 og lærði meðal annars í kvöld að gera dorsal gipsspelku á úlnlið! Gerði hvorki meira né minna en þrjár svoleiðis í kvöld!!;) Eftir vinnu fór ég svo niður á Te og Kaffi og æfði mig á nýju kaffivélina þar. Það var verið að þjálfa nýja starfsfólkið og ég fann að mér veitti ekki af smávegis þjálfun, enda orðin ansi ryðguð eftir langa fjarveru frá kaffivélunum!
Á morgun ætlum við að finna okkur eitthvað skemmtilegt að gera þangað til ég fer í vinnuna klukkan þrjú. Kannski við skellum okkur bara í sund ef veðrið verður eins gott og það var í dag.. eða betra? Kemur í ljós!
Vonandi eigið þið yndislega sumardaga!!:)
Knús og kossar Gunnsa
21. júní 2007 klukkan 00:32
Gunnhildur Árnadóttir 8 athugasemdir