02júní

Byrjuð að vinna!!

Jæja, þá er maður sko byrjaður á fullu.. þetta týpíska íslenska vinnusumar, þið skiljið! 

     Ég er í verknámi á handlækningadeild spítalans á Akureyri núna og verð til 15. júní. Það er samt bara dagvaktir, þannig að ég nýti hvaða tækifæri sem ég get til að vinna mér inn pening (verknámið að sjálfsögðu gert pro bono..). Ég er byrjuð aðeins á slysadeildinni, tók 3 tíma í gær og fyrradag og var svo bara skellt á 12 tíma vakt í dag! Tek aðra svoleiðis á morgun, þannig að það er sko nóg að gera!
Ég er náttúrulega ennþá í aðlögun og er að fylgja annarri hjúkku, en í dag var svo brjálað að gera að ég bara varð að gjöra svo vel að taka á honum stóra mínum og gera fullt sjálf og viti menn, það bara gekk helvíti vel! Ég allavega labbaði brosandi út. Fannst þetta rosa gaman!
       Ég fæ enga smá æfingu þarna í öllu þessu verklega, er á þessum 18 tímum sem ég hef unnið þarna nú þegar búin að taka nokkur hjartalínurit, taka nokkrar blóðprufur, setja upp nál, taka strok í sýklaræktun, taka á móti sjúklingum, búa um sár, gefa lyf, aðstoða lækna, gefa súrefni og síðast en ekki síst þrífa upp BÆÐI blóð og ælu! Geri aðrir betur!!:) hahaha! Læri mikið meira þarna heldur en í verknáminu!:)  
Sé fram á nokkuð skemmtilegt sumar bara! 
       Svo eftir 15. júní, þegar verknámið er búið, þá fæ ég vonandi einhverjar aukavaktir á nýju og flottu Te og Kaffi. Mig klæjar nú pínu í puttana að fá að búa til kaffi! Mikið var gott að fá alvöru, gæðakaffi þegar ég kom heim til íslands. Ég var búin að gleyma því hvað við erum góðu vön! Meira að segja kaffið uppi á spítala er ekkert svo hræðilegt lengur! Ég fékk mér kaffi latte úr sjálfsala í 10/11 í Leifsstöð og meira að segja það var gott! (enda að sjálfsögðu sjálfsali frá Te og Kaffi!)
       En ég er að fara á aðra tólf tíma vakt á morgun og ég má bara engan veginn vera þreytt í þessarri vinnu ef ég ætla að taka inn allt þetta sem ég á að læra þarna! Því verður þetta ansi viðburðalítið laugardagskvöld. Sit núna á Kaffi Amor og skrifa þetta, þar sem ég er ekki ennþá komin með netið heima. En aldrei þessu vant þá syrgi ég það nú ekkert að komast ekki á djammið, enda komst ég að því um hvítasunnuhelgina að djammið er frekar sorglegt hérna á Akureyri! Veit ekki hvort það hefur slappast svona rosalega meðan ég var í burtu eða hvort ég hafi bara verið orðin svona samdauna þessu og hafi ekki tekið eftir því! (vona að það fyrrnefnda sé rétt...). Þegar fólk fór að dansa við þýska þjóðlaga-jóðl-tónlist í teknóstíl, þá ofbauð mér nú bara og ég fór heim. Eða reyndar fór ég á Kaffi Karólínu og tók gott spjall við hana Dittu mína, fjarri ofurölvi Akureyringum með afvegaleiddan tónlistarsmekk! (og enn verri danshæfileika!)

Jæja, farin að sofa, fyrir klukkan tíu á laugardagskvöldi!
Góða nótt lömbin mín! 
Gunnsa
02. júní 2007 klukkan 21:38
Gunnhildur Árnadóttir
3 athugasemdir
28maí

Bíllinnnnnn!!!:)

Sjáiði fína bílinn minn!!:)
28. maí 2007 klukkan 23:12
Gunnhildur Árnadóttir
7 athugasemdir
18maí

Heimkoma!!

Halló fólk!
Núna er ég sko alveg að fara að koma heim!!!:) Lendi snemma snemma a sunnudagsmorguninn. Þannig er mál með vexti að ég verð bara 5 daga í höfuðborginni og langar auðvitað að reyna að hitta sem flesta á þeim tíma. Þessvegna var ég að spá hvort við gætum ekki bara gert eins og þegar ég fór út, allir að hittast á Prikinu?;) Hvernig líst ykkur á það?

Prikið
Sunnudagskvöldið 20. maí
Kl hálfníu-níu?


Allir sem vettlingi geta valdið?!!!Þokkalega!
Elska ykkur og hlakka til að sjá sem flesta!
18. maí 2007 klukkan 16:31
Gunnhildur Árnadóttir
6 athugasemdir
08maí

12 dagar...

....thangad til eg kem heim! Vildi bara minna ykkur a thad!
08. maí 2007 klukkan 16:42
Gunnhildur Árnadóttir
5 athugasemdir
01maí

1. maí

Ég trúi því engan veginn að það sé komið ár. Heilt ár síðan Liljan kvaddi okkur. Það sem ég myndi gefa fyrir að vera heima núna.. getað heimsótt hana í garðinn, knúsað Kristjönu og alla hina...
Samt er ég hálfpartinn fegin að vera ekki heima.. skrítið hvernig þetta er... Held það væri mjög erfitt að vera heima og hafa allt sem minnir mann á Lilju og 1. maí. Þegar við stóðum út á tröppum hjá Vinstri grænum eftir verkalýðskaffi sem breyttist í sorgarstund... Að vera í íbúðinni minni, þar sem ég, Heiða og Hlynur bjuggum saman í heila viku eftirá. Að sjá kirkjuna, kirkjugarðinn, kaffi Amour, listasafnið, Te og Kaffi og alla staðina sem minna mig á hana....


Liljan mín.. ég elska þig og mun sakna um alla tíð. Ég veit að þú brosir niður til okkar og segir okkur að vera ekki sorgmædd. Og við reynum... En það er erfitt...
Hvíldu í friði elsku engillinn minn.



Hún var hjá mér hér í gær
gekk um þessi gólf
Hún var glæsileg og geislandi í gylltum sumarkjól
Það var sól
himininn heiður og tær
og allt í lyndi lék

Nú er orðið hér svo hljótt
allt með öðrum blæ
Og nú heyrist hennar hlátur ekki lengur hér á bæ
Það er kvöld
senn kemur nóttin svo köld
og enginn mér við hlið
hvað tekur við?

Ég má ekki hugsa til þess
að ég sjái hana ekki á morgun
Fái jafnvel framar ei snert
Það er ómögulegt
ekkert líf

Ég gæfi hvað sem er
fyrir að hafa hér allt
eins og það var í gær...

Ó, fyrirgefðu mér
það segist eins og er
Ég særður er án þín
Ég sé ei sólina fyrir þér
og þrái ekkert hér
Heitar en að fá þig heim
og horfa í augu þín sem fyrr
         
                                 (Björgvin Halldórsson)
01. maí 2007 klukkan 00:43
Gunnhildur Árnadóttir
5 athugasemdir
17apríl

Eva farin:(

Seinasta vika er buin ad vera AEDI!!! buin ad hafa Evuna mina hja mer alla helgina og vorum svo helgina thar adur saman i storborginni New York! Skemmtum okkur alveg hreint konunglega og bordudum fullt af godum mat, drukkum fullt af godum kokteilum og forum i sex and the city tour sem var med thvi skemmtilegasta sem eg hef gert! jeijj..
A ad vera ad laera fyrir prof nuna, thannig ad thetta verdur ekki langt, en eg aetla ad henda inn linkum inn a myndirnar minar fra vikunni. Vona ad thetta virki! Tekkid a thvi!
Ast og kossar, Gunnsa

Klikkid a linkana til ad sja myndir.. thetta eru thrju mismunandi album

http://northpark.facebook.com/album.php?aid=2012336&l=ec4c6&id=67601988

http://northpark.facebook.com/album.php?aid=2012337&l=295ec&id=67601988

http://northpark.facebook.com/album.php?aid=2012339&l=c077b&id=67601988


17. apríl 2007 klukkan 05:54
Gunnhildur Árnadóttir
8 athugasemdir
03apríl

JEIJJJ

Vildi bara láta ykkur vita að það eru bara 3 dagar þangað til að ég fæ að sjá þessa skonsu:


Hérna:


Og við aetlum að mála baeinn rauðan í anda þessarra hérna:

Ég get ekki beðið!!!:)



 

03. apríl 2007 klukkan 05:58
Gunnhildur Árnadóttir
6 athugasemdir
28mars

BRJÁLAÐ AÐ GERA!!!

Jæja, ætli maður skuldi ykkur þá ekki eins og einn góðan pistil, þó ég hafi ENGAN VEGINN tíma til þess! Það er sko allt að verða vitlaust hérna, maður á sko greinilega ekki að sitja auðum höndum síðustu vikurnar í skólanum. Ég byrjaði nýjan áfanga um leið og ég kom heim úr spring break. Það er heilsugæslu og heimahjúkrun og í þeim áfanga voru takkfyrirkærlega 4 próf í fyrstu vikunni! Héðanaf verða svo 2 próf í hverri viku og þetta er sko ekkert grín! Svo tók botnlanginn í Jamie vinkonu minni upp á því að springa í síðustu viku og ég eyddi til dæmis 13 tímum með henni á spítalanum á fimmtudaginn, fylgdi henni í allar rannsóknir og sat svo og beið á meðan hún fór í aðgerð kl hálfellefu um kvöldið. Mamma hennar og pabbi búa 7 tímum í burtu og þau komu seinna um nóttina. Hún er mikið hressari núna, botnlangalaus...

Ég byrja í verknámi á morgun. Héðanaf verð ég á miðvikudögum í heimahjúkrun í mjög ríku úthverfi, en á fimmtudögum og föstudögum verð ég að vinna á heilsugæslustöð í hverfi sem heitir North Lawndale og er eitt þekktasta gettóið í Chicago! Þar eru íbúarnir 93,8% svertingjar. Meðal laun eru með þeim lægstu sem þekkjast í Illinois, teen pregnancies þrefalt fleiri en meðaltalið, sömu sögu má segja um ungbarnadauða. Martin Luther King flutti í hverfið í stuttan tíma eftir 1960 til að vekja athygli stjórnvalda á slæmum húsakosti og atvinnuástandi. Eftir að hann var myrtur voru gerðar uppreisnir í hverfinu þar sem talið er að Black Panthers hafi skipulagt skemmdarverk og fjöldi fólks fór um hverfið og braut allar rúður og skemmdu í öllum búðum og fyrirtækjum sem fyrir þeim urðu. Eftir þetta fór meirihluti fyrirtækjanna í hverfinu á hausinn og allt fór á niðurleið.
Þetta verður alveg ótrúlega áhugavert. Það er nú samt ekki laust við að maður hafi smá áhyggjur af því að taka strætó þangað (en við verðum samt tvær saman og alltaf í dagsljósi..). John vinur minn sem er svartur og ólst upp í southside chicago sem er líka hálfgert ghetto, sagði mér að hann myndi sjálfur ekki fara þarna inn í þetta hverfi án þess að eiga mjög mikilvægt erindi... ehemmm...

En já, viljiði ferðasöguna úr spring break? Ég ætla að hafa hana mjög stutta og skorinorða og nota myndirnar sem hálfgerða sögu...
En here we go...

Lögðum Chicago að baki okkur klukkan 10 á laugardagsmorgni


Þaðan lá leiðin til Nashville, Tennessee. Við komum þangað um klukkan 8 og fórum beint niður í bæ til að tékka á kántrímenningunni. Miðbærinn var ótrúlega skemmtilegur og líflegur og allar búðir opnar langt fram á kvöld. Það nýttum við okkur til að kaupa kúrekahatta (offkors...) og skoðuðum kúrekastígvél.
  



Og núna eru íslensku stafirnir eitthvað í rugli... ég er með ð og ö en ekki thonn og ae... thau bara hurfu!! Ojaeja....
Naesta dag tok vid 12 tima keyrsla til Orlando, Florida. Thar var heitt og yndislegt. Naesta dag forum vid i Disney World og forum i Epcot og Magic Kingdom. Thað var rosa rosa gaman! Við fórum til Mars, fundum Nemo, fórum í Snow White´s scary adventures, haunted house, splash mountain og space mountain, aevintyri med Lilo og Stitch og margt margt fleira...
  

Við vorum tharna langt fram á kvöld og kastalinn var thvílíkt flottur í kvöldljósunum og svo var flugeldasýning sem var alveg geggjuð!


En thegar við vorum búin að sjá Disney, thá ákváðum við að Orlando vaeri frekar boring... Svo við ákváðum að keyra til Daytona Beach sem er einn aðal spring break staðurinn í USA. Keyrðum líka framhjá race trackinu thar sem Daytona 500 er haldið... svona fyrir bílaáhugamenn...


Komum okkur fyrir á hótelinu okkar sem var alveg við ströndina.




Okkur fannst nú samt smá ógeðslegt að sjá thakið sem var úti fyrir svölunum okkar...


Síðan tóku bara við 3 dagar af sól og sælu, pool deck parties og strandarklúbbum! (Jeij... eins og fyrir galdra, birtust þ og æ aftur á sínum stöðum... jahérna hér...)






Og auðvitað varð að vera wet t shirt competition... Hef thessa mynd aðeins staerri, svona fyrir strákana!!... (og tha hurfu thonn og ae aftur af lyklabordinu.. hvad er i gangi?


Vid lögðum aftur af stað til Chicago á föstudagshádegi og vorum í raun ósköp ánægð að yfirgefa hótelið þegar þakið var orðið svona útlítandi:


Komum til Chicago á laugardagsmorgni klukkan 9, eftir 21 tíma keyrslu með samtals 6 pissustoppum. Skiluðum bílaleigubílnum, en á hann höfðu baest sirka 2500 mílur eftir thetta aevintyri okkar. Einhver mílu/kílómetrafróður má endilega reikna út fyrir mig hvað thad er oft í kringum ísland... allavega tvisvar, ef ekki oftar! En algjörlega thess virði!

Jaeja, ohhh hvad mér líður vel að vera búin að koma thessu frá mér.. svolítið asnalegt að vera að skrifa ferðasögu svona langt eftir heimkomu.. en thid heyrðuð ástaeduna... brjálað að gera! Laet heyra aftur í mér sem fyrst.. ÉG LOFA!!!

Knús og kossar... Gunnsa... sem kemur heim eftir fáránlega stuttan tíma!
28. mars 2007 klukkan 04:23
Gunnhildur Árnadóttir
4 athugasemdir
17mars

komin heim!

Komum heim i morgun eftir 21 tima keyrslu med 6 pissustoppum!! Ferdasagan med myndum kemur seinna.. vonandi mjog bradlega.. see ya!
17. mars 2007 klukkan 21:33
Gunnhildur Árnadóttir
8 athugasemdir
15mars

Of gömul?

Gærdagurinn var rosalega skemmtilegur... Pool deck party a bakvið hótelið og svo bara hangið á ströndinni og svona... En eftir ad hafa sötrað bjór í sólskininu allan daginn þá bara urðum við að leggja okkur í eftirmiðdaginn. Vöknuðum ekki fyrr en um tíuleytið um kvöldið og höfðum þá engan veginn lyst á bjór.. haha.. Drifum okkur nú samt af stað á barinn/klúbbinn þar sem aðalfjörið átti að vera. Þar leið okkur eins og ellismellum á leikskóladansiballi... Meirihlutinn af fólkinu var með stórt X á handarbakinu sem þýðir að það má ekki drekka og er þarafleiðandi á milli 18 og 21 árs. Við vorum svona tvö af 25 manns þarna inni sem fengum appelsínugul armbönd sem þýddu að við værum á löglegum drykkjaraldri... haha...
Gáfumst bara snemma upp, pöntuðum okkur pizzu og fórum heim á hótel að sofa.. haha...
Er þetta merki þess að maður sé orðinn og gamall fyrir svona vitleysu?!
Eins og áður er ég vöknuð fyrir allar aldir (annað ellimerki....) og ætla að skella mér á ströndina.
Knús og kossar
Gunnsa
15. mars 2007 klukkan 16:25
Gunnhildur Árnadóttir
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...