14mars

Daytona Beach!

Oja, Gunnsan er komin til Daytona Beach! Fengum hotel a strondinni sem vid sidan komumst ad ad vaeri adal Spring break hotelid, med pool deck parties og beer bong competitions all day og svo beach party a kvoldin! haha... Thad aetti ad vera gaman herna! Komum hingad i gaer og forum beint a klubb a strondinni thar sem var alveg rosalega gaman, rosalega mikid af folki og fjori. Ef thid haldid ad spring break se eins og i biomyndunum, think again, thetta er verra! haha! pizzakassar og bjordosir utum alla ganga a hotelinu, gud hvad eg vorkenni folkinu sem vinnur herna!
Eins og venjulega er eg voknud a undan stefani, gladvaknadi klukkan tiu.. veit ekki hvad er i gangi med mig! Er ad spa i ad skella mer i thad ad tekka ut sundlaugina/strondina og na mer i sma brunku.
Knus og kossar
Gunnsa
14. mars 2007 klukkan 14:40
Gunnhildur Árnadóttir
3 athugasemdir
13mars

Dagur 4...

I dag er eg med hardsperrur!
Oja, thad tekur sko a ad labba um Disney World i 9 tima!! hahaha
Vid skelltum okkur i Magic Kingdom og Epcot i gaer og thad var sko thvilikt gaman og hverrar kronu virdi! (hverrar kronu af theim attathusund sem vid borgudum.. ehemmm :s) Vid forum i oll storu taekin, Space mountain og Splash mountain stodu samt uppur! Fyrir tha sem ekki vita tha er splash mountain russibani sem fer i gegnum vatn og thad er moguleiki a ad madur "might get wet". Allavega, tha satum vid fremst i okkar bat og fengum ALLAr gusurnar... vid vorum rennandi blaut thegar vid komum ut! haha.. en thad var samt SVOOOO gaman! Eitt var samt skritid i gaer... eg sa ekki einn einasta Guffa eda Mikka eda Minu labbandi um... thau voru i minningunni fra thvi eg var litil alltaf labbandi um gardinn... en nei.. sma vonbrigdi thar.. haha
Annars erum vid buin ad komast ad thvi ad Orlando, eda allavega thad svaedi sem vid erum a er alveg rosalega turistalegt og fjolskylduvaent.. eiginlega of fjolskylduvaent thvi allt lokar herna klukkan 10 a kvoldin. Varla haegt ad fa ser bjor einusinni... thannig ad vid erum ad spa i ad athuga hvort haegt se ad fa endurgreiddar naeturnar sem vid eigum eftir herna og faera okkur um set, keyra hugsanlega eitthvad nidur ad strondinni, daytona beach eda eitthvad alika. Laet ykkur vita hvernig gengur
En eg er komin i bikiniid og aetla i sundlaugina herna a hotelinu thangad til Stefan vaknar... Thad er ekki litid hvad drengurinn getur sofid!!
Kossar og knus
Gunnsa
13. mars 2007 klukkan 16:56
Gunnhildur Árnadóttir
3 athugasemdir
12mars

Orlando baby yeah

Loksins, loksins, loksins eftir 12 tima keyrslu (sem annars gekk mjog vel...) erum vid komin til Orlando og inn a hotelherbergi! Eg segi loksins vegna thess ad 3 timum adur en vid komum hingad tha hringdum vid a hotelid til ad segja theim ad vid yrdum sein. I simann svaradi verulega illa upplogd kona sem abyggilega var a tur og sagdi okkur ad hun fyndi ekki bokunina okkar. Hun sagdist ekkert geta gert fyrir okkur og ad vid yrdum bara ad hringja i netfyrirtaekid sem vid bokudum ferdina hja. Okei, vid hringjum i hotel hotline.com og thar segir simsvari manni ad skilja eftir skilabod og thjonustufulltrui hringi i okkur um leid og mogulegt se. I stuttu mali, tha eru their ekki ENNTHA buin ad hringja (thratt fyrir 3 skilabod i vidbot!) Og thad tok sko a taugarnar ad segja sjalfum ser i 3 tima ad "thetta verdur allt i lagi" "thetta reddast alltsaman" "thetta eru bara kjanamistok" osfrv osfrv. En thad tokst og thegar a leidarenda kom, tha la helv**** bokunin a bordinu, beint fyrir framan afgreidslumanninn! Thad la vid ad eg fengi hlaturskast.. eda faeri ad grata, eg gat ekki alveg akvedid mig! Sma spennufall tharna! En sem betur fer er hann Stefan gedgodur og nadi ad halda andliti med mer i allan thennan tima! Halfgert jakvaednisleikrit i gangi i bilnum... asamt thvi ad vid raeddum allar mogulegar "hvad ef..." kringumstaedur!
En vid erum "right smack in the middle" a ollu herna i orlando og Wet n Wild sundlaugargardurinn er 10 minutna labb fra okkur! Jeij! Gunnsa thangad!
En allavega, thungu fargi af mer lett og eg fer anaegd ad sofa i kvold! Ekkert vandamal thar!

Keyrslan i dag var annars aedi, keyrdum i gegnum Tennessee og Georgia til ad komast til Florida. Leidin milli Nashville og Chattanooga var ein su fallegasta sem eg hef sed a aevinni! Minnti mjog a evropu med fjollum, votnum, trjam og ja, bara otrulega fallegu utsyni!

Vid aetlum ut ad fa okkur eitthvad ad borda og sma labbitur, en svo er thad bara bolid sem bidur... Tvo fin queen size rum sem virdast bara alveg hreint agaet...

Lofa ad lata heyra fra okkur aftur sem fyrst!
Knus og kossar
Gunnsa
12. mars 2007 klukkan 04:00
Gunnhildur Árnadóttir
6 athugasemdir
11mars

Spring Break!

Mér láðist víst að segja ykkur, enda ákveðið á síðustu stundu, að ég og Stefan, austurrískur strákur úr skólanum, ákváðum að taka okkur smá ROAD TRIP fyrir Spring Break, sem er vikulangt frí í skólanum. Við tókum okkur bílaleigubíl og ætlum að keyra niður til Orlando, Florida og ná okkur í smá sólskin. Þetta er sirka 18-20 tíma keyrsla og þessvegna ákváðum við að taka þetta í tveimur áföngum. Við erum rétt í þessum töluðu orðum stödd í Nashville, Tennessee, heimabæ kántrítónlistarinnar! Keyrðum 8 tíma í dag og ætlum að taka 10 tímana á þetta á morgun. Hingað til hefur gengið alveg rosalega vel og við búin að keyra frá Illinois, í gegnum Indiana og Kentucky og erum núna eins og áður segir í Tennessee. Í Kentucky fékk ég mér að sjálfsögðu KFC en varð fyrir hrikalegum vonbrigðum.. jafnast ekkert á við íslenska KFC!
Keyrðum framhjá mjög skemmtilegum gatnamótum í Kentucky.. þar var Whitestown til vinstri en Brownsburg til hægri... maður veltir fyrir sér hvaðan þessar nafngiftir koma!;)
Við erum með milljón geisladiska með í för og höfum þessvegna böns af skemmtilegri tónlist fyrir ferðina og því var ferðin í dag bar aótrúlega skemmtileg! Blöstuðum kántrítónlistina þegar við komum í suðurríkin.
Læt ykkur vita nánar af ferðum okkar á morgun þegar við verðum komin til Orlando!
Knús og kossar,
Gunnsa
11. mars 2007 klukkan 00:29
Gunnhildur Árnadóttir
2 athugasemdir
08mars

Ef ykkur leiðist....

1.hvað heitir þú?
2.hvað ertu gamall/gömul ?
3.ertu á lausu eða föstu?
4.hvaða tónlist hlustaru mest á?
5.hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú sérð mig?
6.hvaða 5 hlutir minna þig á mig?
7.ef ég myndi biðja þig um msn-ið þitt, hverju myndiru svara?
8.hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
9.hver er “Idolið” þitt?
10.hvern þykir þig vænst um?
11.ertu ástfanin/n ?
12.hefuru verið ástfangin/n ?
13.Hver er heitasti skemmtistaðurinn í dag?
14.ætlaru að plögga þessu á síðuna þína svo ég geti svarað þessum spurningum hjá þér?
08. mars 2007 klukkan 20:24
Gunnhildur Árnadóttir
6 athugasemdir
06mars

halló halló halló

Sælt veri fólkið.

Ég veit að ég er ekkert búin að láta í mér heyra í langan tíma... og ég biðst afsökunar á því, en það er bara búið að vera alveg brjálað að gera hjá mér. Eftir að ég var lasin, var ég komin alveg rosalega langt á eftir í öllu í skólanum og er búin að vera á fullu við að vinna það allt upp. Ég er loksins komin á réttan kjöl aftur og ég tók próf í morgun sem ég fékk 8,5 í, þannig að það verður víst að teljast ágætt.

Það sem er helst að frétta af mér er samt að ég fór á geðveika tónleika um daginn, með Gnarls Barkley og Red Hot Chili Peppers!! Ójá, á SÖMU tónleikunum.. magnað alveg hreint! Eins og þið getið ímyndað ykkur, þá voru þetta æðislegir tónleikar og virði hverrar krónu. Ljósasjóvið hjá Chilipiprunum var ótrúlegt.. það rosalegasta sem ég hef séð. Ég ætla að reyna að hlaða inn myndbandi sem gefur ágætis hugmynd um þetta.. vona að það gangi upp. Og að sjá Cee-lo Green og DJ Danger Mouse taka Smiley faces og Crazy.... óborganlegt!!!!!;)

Akkúrat núna er ég samt að passa og Emil Örn þessi elska var svo vinsamlegur að sofna án átaka, kúrði sig bara upp í hálsakot á mér og lá þar og dundaði sér við að fikta í hálsmeninu mínu í svona hálftíma og steinsofnaði svo og rumskaði ekki þegar ég lagði hann í rúmið. Þetta hefur aldrei gengið svona vel.. ætli hann sé ekki bara svona úrvinda eftir daginn á leikskólanum. Ég er því baraað horfa á sjónvarpið á E! True Hollywood Story um Lionel og Nicole Richie. Voða áhugavert eða þannig.

Síðasti þátturinn sem ég horfði á var My Super Sweet Sixteen á MTV sem er klikkaður raunveruleikaþáttur um brjálæðislega ríka krakka hérna í Ameríku sem halda upp á 16 ára afmælin sín með meiri stæl heldur enJóhannes í Bónus heldur upp á sextugsafmælið... úff... þau fá öll Lexusa og BMW-a í afmælisgjöf og fá geðveikar hljómsveitir til að spila og dansara og mæta á svæðið í þyrlum og læti!! Þetta er eiginlega of fáránlegt til að vera hlægilegt...

Annars vil ég bara taka það fram að það er bara mánuður þangað til að ég hitti hana Evu mína í New York baby!! JEIJJJ!!! Við ætlum sko að mála borgina rauða! Taka sex and the city túrinn og taka svo chinatown með trompi!!:) Svo helgina eftir það, þá ætlar Eva að koma til mín í Chicago og ég ætla að sýna henni what it´s all about!!!;) OHHHHHH ég hlakka svo til! Fæ fiðrildafiðring í magann bara við tilhugsunina!!! JEIJ!!

En jæja, ég ætla að reyna að læra aðeins heima...

Eigiði yndislegan dag...

Knús og kossar
Gunnsa
06. mars 2007 klukkan 03:22
Gunnhildur Árnadóttir
6 athugasemdir
23febrúar

Aldeilis fréttir!

Já, nú er ég aldeilis með fréttir.
Þið munið væntanlega öll eftir litla ljóta sporðdrekatattooinu sem ég er með á ökklanum. (Nema það séu einhverjir að lesa þetta blogg sem þekkja mig ekki neitt....) En allavegana... Í langan tíma hefur mig langað til að láta setja eitthvað fallegt yfir sporðdrekann til að fela hann. Ég er í jafnlangan tíma búin að vera að hugsa um hvað mig langi að setja yfir hann. Svo um jólin komst ég loksins að niðurstöðu. Mig langar í lilju. Í minningu Lilju. Fallega mynd af liljublómi. Ég var svo búin að velta fyrir mér hvar ég ætti að láta gera þetta. Ég er búin að skoða heimasíður allra tattostofa í Chicago liggur við og skoða verk endalaust margra tattoo artista. Fann svo loksins einn sem mér líst rosa vel á. Hann heitir Mario Desa og er búinn að vera að í 10 ár. Hann vinnur á Chicago tattoo company sem er ein elsta og virtasta stofan í Chicago.
Og í gær lét ég verða af þessu. Útkoman er að mínu mati algjört æði. Ofurfalleg mynd af fallegri lilju sem hefur svo ótrúlega mikla þýðingu fyrir mig að það er ekki séns að ég fái nokkurntímann ógeð af henni.
Ég ætla að setja hérna inn tvær myndir af tattooinu. Það er að sjálfsögðu ekki gróið ennþá og því smá blóð/sár í myndinni en það á eftir að jafna sig á næstu vikum. Ég biðst líka afsökunar á órökuðum, ofurhvítum leggjum.. haha...




Endilega segið mér hvað ykkur finnst.
Hreinskilni vel þegin:)
Over and out.
Gunnsa
23. febrúar 2007 klukkan 19:19
Gunnhildur Árnadóttir
22 athugasemdir
22febrúar

Uppdeit um veikindin

Ojá, ég er ennþá lasin..
Allt komid oní lungu núna, offkors....
Fór til hjúkkunnar í gær sem vildi senda mig hið snarasta til læknisins aftur og hneykslaðist og hristi hausinn yfir því hvað læknirinn á föstudaginn gerði og sagði.
Ég fékk tíma hjá lækni í morgun og fór og hitti hann, og hann hafði miklar áhyggjur af mér greyið, lét mig fá sýklalyf og sterapúst og sagði mér að ef ég skánaði ekki eftir 2 daga vildi hann fá röntgenmynd af lungunum í mér. Þannig að það helsta sem er að hrjá mig í dag eru magaverkir útaf sýklalyfjunum og skjálfti og taugatitringur útaf sterunum.. haha... Þannig að aukaverkanirnar af lyfjunum tóku við af veikinda einkennunum.. en svona er þetta... einhverju verður að fórna.
Ég fór ekki í verklegt í dag eða í gær, enda vil ég ekki smita litlu sætu börnin á fæðingadeildinni.
Veit ekki hvernig ég á að vinna það upp, ég var að enda við að klára verkefnið sem kennarinn okkar lét okkur sem ekki komumst vegna óveðurs í síðustu viku gera sem refsingu. Hún lét okkur taka 30 mest notuðu lyfin í fæðingahjúkrun og skrifa niður virkni, skammta, leið, aukaverkanir, viðvaranir og "contraindications" fyrir þau öll! jeminn eini það tók sko tímann sinn.. en bara copí peist uppúr lyfjabókinni minni. Vonandi verður hún sátt við það.
Ég er annars bara búin að vera að læra og dúlla mér í viku núna... Það að læra tekur mig samt alveg þrefalt lengri tíma.. ég hugsa og hreyfi mig mikið hægar þegar ég er veik.. hehe...:)
John vinur minn ætlar að koma í heimsókn í kvöld, ætli við glápum ekki bara á video eða eitthvað. Ég er ekki ennþá farin að fara út úr húsi. Ég og Jamie erum núna bara að lakka á okkur neglurnar:)
Vonandi þið séuð ekki líka lasin... þetta er ömurlegt! hahahaha
Elska ykkur öll
Gunnsa
22. febrúar 2007 klukkan 03:07
Gunnhildur Árnadóttir
3 athugasemdir
17febrúar

Veik aftur:(

Já, þið lásuð rétt. Gunnhildur er aftur orðin lasin.
Í gærmorgun vaknaði ég af værum svefni við það að mér fannst 2 tonn liggja ofan á bringunni á mér. Ég hóstaði ógurlega og mældist með 37.5 stiga hita. Fyrir þá sem þekkja mig, vita þeir að ég fæ aldrei hita og ef ég er virkilega veik, þá hef ég í mesta lagi fengið 38°c.
Allavegana, gærdagurinn var ágætur en svo í morgun ákvað ég að fara til skólahjúkkunnar. Hún gaf mér hóstasaft og einhverjar töflur. Tveimur tímum eftir heimsóknina til hjúkkunnar byrja ég að skjálfa óstjórnlega og mér verður svo illt um allan líkamann að ég fór að hágrenja og hringdi í mömmu. Þá hafði hitinn, á tveimur tímum rokið upp í 38,5 þannig að mín er ekki alveg í rónni. Ég hringi aftur í skólahjúkkuna sem hefur miklar áhyggjur af mér og ákveður að skutla mér upp á spítala til læknisins. Eftir mikla orrahríð spurninga læknanema sem kom til að taka af mér viðtal, kemur "læknirinn" inn í íþróttabuxum og bol, lætur eins og hann eigi heiminn, lætur læknanemann segja sér svona sirka 1/fimmta af því sem ég hafði sagt honum og segir svo...

.... you have a cold.

Theink jú verrí næs!

Ég held ég viti aðeins betur þegar ég er með kvef eða eitthvað verra. Ef ég væri með kvef, hefði ég að sjálfsögðu ekki látið keyra mig, grátandi upp á spítala!! Ertu hálfviti!
Ég þurfti að grenja útúr honum eitthvað til að láta mér líða betur og hann lét mig fá hóstamixtúru með killer skammti af kódeini sem veldur því að ég verð öll skrítin og mjúk að innan.. haha.. og get ekki sofið fyrir fimmaur. Svo hósta ég engu að síður....

En jæja, mér líður allavega ömurlega.. vinkona mín kom inn áðan og reif ofan af mér teppi og opnaði gluggann því að hennar sögn var víst eins og gufubað hérna inni og ég fann ekki bofs fyrir því.. Ég bara skalf undir sænginni minni í tvennum buxum og peysu...

Ég hef verið að borða kjúklinganúðlusúpu að amerískum sið, sem og bláberjasúpu að mömmu-sið. Mér líður betur að innan þegar ég borða bláberjasúpuna, held það sé kannski bara tilhugsunin um mömmu..:)

Love y'all....
hugsiði fallega til mín
knús og kossar.. (ekki samt alvöru því ég vil ekki smita ykkur...)
Gunnsa lasarus
17. febrúar 2007 klukkan 03:01
Gunnhildur Árnadóttir
9 athugasemdir
13febrúar

Smá Öppdeit..

Jæja krakkar

það er aðeins búið að skána hérna veðrið, núna er 'bara' 13 stiga frost.. en það er nú þolanlegt.
Ósköp tíðindalítið upp á síðkastið. Bara rosa gaman í verknáminu, sá tangarfæðingu á miðvikudaginn sem var mjög áhugavert. Svo hef ég bara verið að gera líkamsmat á nýfæddum börnum og gera "care plans" um þau sem er eitt það leiðinlegasta sem ég hef gert... Hjúkrunargreiningar, verkþættir og útskýringar... jeijjj... gotta lovitt maður.

Helgin var í rólegri kantinum, fórum aðeins út í bjór á fimmtudaginn en aldrei þessu vant fór Gunnhildur snemma heim! Var svo að passa allan föstudaginn og fór svo út á frægan blús bar með Dino, Vicky, Lauren og Marko sem var mjög gaman. Við Vicky vorum vissar um það að Dennis Quaid sjálfur sæti þarna á einu borðinu, en Dino og Lauren vildu ekki alveg vera sammála þessu. Við komumst væntanlega aldrei að hinu sanna í málinu, en þangað til ætla ég að halda því fram að ég hafi séð celebrity.. hahaha

Laugardagskvöldið fórum ég og Linda heim til Kelly og Danny þar sem við pöntuðum okkur heimsendan mat og horfðum á sjónvarpið og höfðum það gott. Fór aftur snemma heim og svaf í 11 tíma straight. Langt síðan ég hef gert það og ég greinilega þurfti á því að halda.

Á sunnudaginn fórum við ásamt nokkrum stelpum af heimavistinni á leikrit sem var byggt á emailum sem Rachel Corrie, friðargæsluliði í Palestínu sendi fjölskyldu sinni og vinum meðan hún dvaldi þar. Hún var myrt 2003 þegar ísraelskur "bulldozer" keyrði yfir hana þar sem hún var að reyna að stöðva hann frá því að brjóta niður hús almennra borgara sem hún var að reyna að vernda. Hún hafði greinilega miklar og stórar hugsjónir og skrifaði mjög hreinskilnislega um reynslu sína. Þetta var mjög sorglegt en áhugavert leikrit sem snerti mann mjög. Maður hlýtur að velta fyrir sér hverju þetta skilaði og hversu miklu einn einstaklingur getur áorkað í baráttu við þessi ógnarstóru stríðandi öfl sem þarna eru. Maður veltir fyrir sér hvort hún hafi með dauða sínum haft meiri áhrif heldur en ef hún hefði haldið starfi sínu þarna áfram um óráðinn tíma.... ?

Í dag hef ég svo bara verið að laga aðeins til í herberginu mínu, þvo þvott og svona og taka því rólega. Þarf að fara snemma að sofa því ég þarf að vakna í verklegt klukkan 5 í fyrramálið.. jeij....!

kossar og knús
Gunnsa
(Guðslifandi fegin að vera í Chicago en ekki í Palestínu...)
13. febrúar 2007 klukkan 01:28
Gunnhildur Árnadóttir
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...