Haha.. thetta er nu buid ad vera meira aevintyrid! Daginn adur en eg kom hingad til Seattle til fraenku minnar var svo brjalad vedur ad tre brotnudu og lentu a rafmagnslinunum og rustudu ollu herna... Thad er allt tengt i rafmagn i husinu, thar a medal moguleikinn a ad sturta nidur ur klosettum, fara i sturtu, hita husid osfrv thannig ad thad var engan veginn lift i husinu! Svo vid forum til Oregon til fraenda mins og gistum thar eina nott og forum svo til annars fraenda sem byr naer okkur i port orchard og gistum thar sidustu tvaer naetur. Vid vorum farin ad ottast um jolahald her i husinu, en loksins kom rafmagnid a i dag, okkur til mikillar gledi!:) En eg er semsagt ekki buin ad komast neitt a netid sidan a fimmtudaginn thannig ad eg hef verid alveg aftengd fra heiminum.. hehe.. en hef haft thad otrulega gott hja yndislegu fjolskyldunni minni. Rosalega notalegt. Fyrir tha sem vilja heimilisfangid herna tha er thad 1019 34th ave nw, gig harbor, wa 98335, usa:). Vegna allra thessa flutninga a okkur tha hef eg heldur ekki komist i thad ad senda thau jolakort sem eg atti eftir, thannig ad eg bara bidst aftur afsokunar og bara vona ad thad verdi enn skemmtilegra ad fa thau seint og sidarmeir og eiga eitt svona aukajolakort til ad opna thegar allir hinir hafa opnad oll sin.. hehe... En allavega, eg kved ykkur herna ur hlynandi (ekki hlyju samt) husi, sem er haegt ad sturta nidur i.... Over and out Gonzo
20. desember 2006 klukkan 01:44
Gunnhildur Árnadóttir 3 athugasemdir
í gær varð ég vitni að the lowest of the low, the true scum of the earth!
Ég fékk tækifæri til að vera viðstödd upptöku af the Jerry Springer show, sem allir vita að er algjört "gæða" sjónvarpsefni! Ég gat ekki sleppt þessu once in a lifetime opportunity!!
Við mættum í NBC tower um fimmleytið í gær. Fórum og settumst inn í settið, sem er mun minna en það lítur út fyrir í sjónvarpinu. (eins og allt annað...). Þátturinn snérist um fólk sem þurfti að segja ástvinum sínum eitthvað dirty secret. Fyrsti gesturinn var svört kona, sem seinna kom í ljós að var kynskiptingur. Hún/hann bjó með systur sinni, manninum hennar og tveimur ungum börnum. Hennar confession var að hún/hann var búin/n að vinna sem vændiskona/maður í tvö ár og notaði stundum hjónarúmið þeirra hjóna fyrir "vinnuna". Systirin kom út og byrjaði að lemja systur/bróður sinn og þær fóru í rokna slag og toguðu í hár og lömdu og kýldu. Einhver úti í sal hló óvenju hátt og þá snéri kynskiptingurinn sér að henni og öskraði "what are you laughing at, bitch?!!" og þær fóru næstum í slag líka... gæðasjónvarpsefni!! Næsti gestur var samkynhneigdur svartur maður sem þurfti að viðurkenna fyrir kærastanum sínum til tveggja ára að hann væri búinn að vera að sofa hjá besta vini hans í 3 mánuði og þeir væru ástfangnir. Hann var búinn að vera með honum í tvö ár vegna þess að kærastinn studdi hann fjárhagslega. Kærastinn var kallaður fram og þeir lentu í slag. Á meðan kallaði salurinn "fight like men! fight like men!". Loks kom besti vinurinn inn, en hann var klæddur i bleikar kvenmannsnærbuxur, svartan hlýrabol og loðin stígvel sem náðu upp að hnjám. Þessir þrír kvenlegu karlmenn lentu svo aftur í slag. Þá byrjaði salurinn að öskra "take off your pants, take off your pants" og þessir tveir sem voru actually í buxum fóru úr þeim og voru báðir í blúndunaríum innanundir. Jesús.. þetta var rosalegt. Svo var kominn tími á að salurinn spyrði hópinn spurninga. Ein stelpan í salnum fór að rífast við kynskiptinginn og klykkti út með "at least my boobs are real..." og þá byrjuðu allir að öskra "show them, show them..." og bæði kynskiptingurinn og stelpan úr salnum sýndu á sér brjóstin, viðstöddum til mikillar gleði.. hahaha... Einn úr salnum var með komment á hommana og sagði: "in the first place, honey, pink is SO last season! Second place, Quentin, CALL ME!" Quentin var semsagt svikni kærastinn.. og þeir kölluðu gaurinn upp á svið og þeir fóru að kyssast, og þá varð allt brjálað aftur.. slagsmál og læti... hahahaha.. þetta var ROSALEGUR þáttur!! Ég kom út og var, og er í raun enn, alveg kjaftstopp yfir að hafa virkilega orðið vitni að þessu lowlife crap fólki! muahahahahhaha.... skammast mín í raun hálfpartinn... bwahahaha.. en þetta var samt BARA fyndið!! Við þurfum svo að fylgjast með því hvenær þátturinn verður sýndur í sjónvarpinu. Ég skal reyna að taka hann upp fyrir ykkur heima!! ;)
En jæja, ég á víst að vera að læra núna... varð bara að segja ykkur frá þessarri rosalegu lífsreynslu!! love you Gunnsa
13. desember 2006 klukkan 04:24
Gunnhildur Árnadóttir 10 athugasemdir
þá styttist í allt jólastandið.. bara 4 dagar þangað til ég fer til Seattle, ótrúlegt alveg hreint! Búin að senda flestöll jólakortin, en ekki öll, og alla jólapakkana. Vona að þetta komist allt til skila á réttum tíma, en ekki örvænta ef þið fáið kort aðeins of seint.. ehemm...
Nokkrir af skiptinemunum koma ekki aftur eftir jól, þannig að það er ekki laust við smá sorglegheit hérna í hópnum... Fórum öll saman, 13 stykki heim til Jons í gær og höfðum það gott, mamma hans bjó til rosa góðan mat fyrir okkur og við horfðum svo á pirates of the caribbean 2 í sjónvarpsherberginu þeirra sem er líkara því að vera bíósalur, með tveimur sófum á upphækkuðum pöllum, breiðtjaldi og surround kerfi. Alveg hreint glæst. Svo sátum við bara í kringum barinn sem er í kjallaranum þeirra (án gríns), blönduðum drykki og spiluðum beer pong og pool (á poolborðinu sem er líka í kjallaranum.... nice alveg hreint). Svo fóru allir í heitapottinn þeirra og svo bara að sofa. Við gistum öll heima hjá þeim. Þetta var ótrúlega kærkomin hvíld frá heimavistinni og gaman að ná að vera saman bara við hópurinn áður en jólafríið kemur.
Komum heim í dag og erum bara búin að hafa það rólegt. Fór út að borða með Dino áðan og borðaði alveg geggjað gott sushi á nýjum sushistað sem við höfðum aldrei prófað. Ég er orðin alveg hooked.
Er að passa á morgun og held ég fari bara að pota mér í rúmið. Smelli kannski nokkrum myndum frá helginni inn ef ég nenni á morgun.
Ætlaði að henda inn einni mynd af jólasvein hérna og googlaði orðið jólasveinn og held ég barasta VERÐI að skella inn einni af myndunum sem kom upp: hóhóhó!!
Over and out Gunnsan
11. desember 2006 klukkan 11:09
Gunnhildur Árnadóttir 4 athugasemdir
Þar sem ég hef tekið eftir því að það eru örfáir einstaklingar sem endilega vilja senda mér jólakort en vantar heimilisfangið mitt, ákvað ég bara að pota því hérna inn. Það er alltaf gaman að fá póst:)
Gunnhildur Árnadóttir
3305 W Foster Ave
CPO 3020
Chicago, IL 60625
USA
That´s me!
Annars er bara allt gott að frétta, styttist í lokapróf og svona. Alltaf gaman að því
Það er annars það að frétta af manninum úr síðustu færslu, að hann er útskrifaður af spítalanum, nokkuð hress miðað við allt!:) hehehe...
Eigiði góðan dag!
Knús og kossar
Gunnsa
05. desember 2006 klukkan 09:52
Gunnhildur Árnadóttir 3 athugasemdir
Ég veit ekki hvernig ég mun tala þegar ég kem heim því ég er orðin svo vön allri skammstafana-geðveikinni á spítalanum.
Hér er það sem er að sjúklingnum mínum á ICU: Hann er með CHF, MI, COPD, URI og NIDDM. Við fylgjumst með JVD. Hann er í hættu á að fá DVT. Hann fær K, Mag og P riders IV í gegnum PICC. Við tökum CBC og ABG´s daglega. Við skráum I/O og F&E. Hann er lágur í Hgb, Hct, A/G ratio og PTT. Hann er á CPAP vent með PEEP 5.
Vill einhver reyna að þýða þetta yfir á íslensku?!!
30. nóvember 2006 klukkan 07:54
Gunnhildur Árnadóttir 9 athugasemdir
Jæja, þá er maður kominn heim aftur eftir æðislega thanksgiving helgi af afslöppun og góðum mat! Ég býst við því að fólk vilji fá ferðasögu, right? Á miðvikudaginn lögðum við af stað, ég, Dino og Vicky frá Argentínu. Við komum við í alveg geggjuðu molli og did some shopping, ofcourse!! hehe.. keypti ymislegt fyrir fólk sem var búið að leggja inn pantanir.. sendi dótið í vikunni. Keypti að sjálfsögðu eitthvad fyrir mig líka. Svo fórum við heim til foreldra Dino en þau búa í úthverfi Chicago sem heitir Indian Head Park. Við tókum því bara rólega til að byrja með og komum okkur fyrir en svo kíktum við aðeins út í Naperville. Fórum á Martini-bar þar sem ég fékk mér tvo alveg geggjaða martini, einn mojito-martini offkorrrs og svo mintu-súkkulaði-martini sem var alveg geggjaður Svo á fimmtudeginum vorum ég og Vicky heima með mömmu hans Dino og hjálpuðum henni í eldhúsinu á meðan Dino fór og hjálpaði restinni af fjölskyldunni sinni að þrífa veitingastaðinn þeirra, en hann er opinn 24 tíma á sólarhring og er alltaf tekinn rækilega í gegn á thanksgiving sem er eiginlega eini dagurinn fyrir utan jólin sem staðurinn er lokaður! Kominn tími til.. hehehe... En svo um kvöldið fylltist allt af grísku fjölskyldunni hans, sem voru mörg og hávær! hehe.. þetta var næstum eins og í my big fat greek wedding.. án gríns! tíhíhí! Við fengum klassískan thanksgiving mat, kalkúna, stuffing, sósu og sætar kartöflur, ásamt allskonar geggjuðum grískum mat, fetaost, fyllt vínberjalauf, spínatböku, filo-bökur með osti og spínati og allskonar annað gúmmulaði. Með þessu drukkum við punch. jömmí! Fyrir þessi hátt í 30 manns í boðinu þá þurfti hvorki meira né minna en 24 punda kalkún sem er hátt í 12 kílóa flykki! Svo hittist það einmitt þannig á að litla frænka Dino, dóttir systur hans, átti 2 ára afmæli sama dag og thanksgiving, þannig að það var afmælisveisla í leiðinni og risakaka og allt tilbehör.
Á þessum myndum getið þið séð kalkúnann, pönsið, Dino, Vicky og bróður Dino, mömmu hans og pabba og svo að lokum systur hans ásamt litlu snúllunni henni Sophiu sem varð tveggja ára gömul og fékk Elmo köku:)
Á fimmtudagskvöldið héldum við heim aftur til þess eins að fara að sofa og vakna óguðlega snemma á föstudagsmorguninn því að stærsta útsala ársins í usa er alltaf daginn eftir thanksgiving og búðirnar opna flestar klukkan sex um morguninn og við Vicky drifum okkur út til að ná öllum bestu dílunum! Það gekk upp og við gátum verslað af okkur rassgötin án þess að vera fastar í þvögu. Við þökkuðum fyrir það þegar við fórum heim um ellefu, því þá voru ALLIR og þá meina ég ALLIR að koma niðrí bæ og búðirnar troð troð troð fullar og kílómetra raðir að kössunum. Ótrúlega margar búðir voru líka með til dæmis 25% auka afslátt af öllu í búðunum fyrir klukkan tíu.. eða allskonar gefins dót með hverjum kaupum, á meðan birgðir entust.. og auðvitað græddum við fullt á því! Gaman gaman.
Svo klukkan tvö mætti ég á Greyhound rútustöðina til að taka rútu til Decatur, illinois, en þar búa mamma og pabbi Jóhönnu, skáfrænku hennar Lilju minnar. Jóhanna tók á móti mér og fór með mig beint til vinafólks þeirra sem var með síðbúna thanksgiving veislu svo ég græddi aftur kalkúna en í þetta skiptið var meðlætið með indversku sniði, enda fjölskyldan indversk sem við snæddum hjá. Þvílík snilldar eldamennska! MMMMmmmm.. ég át á mig gat! En ég var orðin ansi þreytt eftir duglegheit dagsins og því var rosalega gott að leggjast í stórt og þægilegt rúm og sofa í tólf tíma eftir þetta allt saman. Södd og sæl
Á laugardeginum fórum ég, Jóhanna og mamma hennar í labbitúr í nágrenni hússins þeirra. Þau búa á alveg yndislega fallegum stað, við vatn og húsið og útsýnið æðislegt! Sjáiði bara:
Um kvöldið var svo matarboð með egypsku vinafólki þeirra. Þvílíkt alþjóðleg helgi hjá mér! Pabbi Jóhönnu og bróðir sáu um eldamennskuna og við fengum alveg æðislegan indverskan mat aftur! Nammm.. ég er hooked!:) Við unga fólkið kíktum svo aðeins út á skemmtistað í Decatur og skemmtum okkur konunglega.
Michael, bróðir Jóhönnu og Kristina, kærastan hans. Ég og Jóhanna
Jóhanna og pabbi hennar. Jóhanna og mamma hennar.
Í sunnudagshádeginu fórum við svo í enn eitt indverska matarboðið hjá nágrannafólki þeirra. Fengum aftur alveg æðislegan mat. Eftir matinn fengu allir sér lúr.. það tekur á að borða svona mikið og gera ekki neitt!!;) hehe Svo tók ég rútuna heim til Chicago í gærkvöldi og var komin heim um eittleytið eftir miðnætti. Fór beint í háttinn og fór svo í tíma í hjúkrun fullorðinna í morgun. Sit núna á kaffihúsinu mínu og er að reyna að koma þessu öllu niður á blað... (tölvu..)
Þessi langa helgi var alveg hreint fullkomin í alla staði og sannaði fyrir mér að það er nauðsynlegt að komast í burtu við og við og vera með fjölskyldu.. á heimili.. það þarf ekki að vera manns eigin fjölskylda eða eigið heimili, heldur er bara rosalegur munur að vera í þessu fjölskyldu-umhverfi, þegar maður býr á heimavist þar sem maður deilir herbergi, klósetti, mötuneyti, sjónvarpsherbergi og öllu öðru með milljón manns... þvílíkur lúxus að fá að sofa einn í herbergi í stóru rúmi, fara í bað einn og yfirgefinn, eiga alvöru samræður við fólk og vera í hópi góðs fólks. Yndislegt alveg hreint
Ég kem því alveg endurnærð til baka og tilbúin til að takast á við næstu tvær vikur í skólanum sem eru þær síðustu fyrir jólafrí! Ótrúlegt en satt! Mikið rosalega flýgur tíminn hratt! Ég hlakka til að fara til Seattle og hitta fjölskylduna þar og eiga yndislegan mánuð og ég veit að maturinn þar verður alls ekki síðri en sá sem ég fékk um helgina! Mmmm... hangikjöt!!!:)
Elska ykkur öll og sakna og vona að þið hafið átt góða helgi eins og ég!
28. nóvember 2006 klukkan 02:51
Gunnhildur Árnadóttir 7 athugasemdir
Ég fagna hvada degi sem er sem gefur mér þriggja daga frí frá skólanum!!! Farin að éta á mig gat heima hjá Dino og svo fer ég um helgina til Decatur að hitta Joönnu og foreldra hennar sem ég hef aldrei hitt og verður án efa gaman!!:)
Það er eitt sem ég ætla að vera sérstaklega þakklát fyrir á morgun og það er að hafa kynnst yndislegu Liljunni minni. Ég sakna hennar meira en orð fá lýst. Ég elska þig
23. nóvember 2006 klukkan 04:00
Gunnhildur Árnadóttir 11 athugasemdir
Á föstudaginn síðastliðinn varð ykkar ástæra Gunnhildur 23 ára gömul hvorki meira né minna! Til að halda upp á daginn leyfði minn yndislegi vinur Dino mér að halda partý í íbúðinni sinni. Þemað var ákveðið að yrði Hawaii. Í stíl við það voru skreytingar og outfitt partýhaldara. Hátt í þrjátíu manns létu sjá sig í tilefni dagsins. Bollan var litrík og bragðgóð og gestirnir glaðir. Afmælisbarnið skemmti sér alveg ótrúlega vel og vildi að allir vinir sínir heima hefðu getað komið líka! Þeir hefðu heldur betur skemmt sér konunglega!! Alohaaaaaa! Látum myndirnar tala sínu máli.
Eftir partýgleðina héldu næstum allir gestirnir niður í miðbæ Chicago, á bar sem heitir því frumlega nafni Bar Chicago. Einhver ótrúleg lukka varð til þess ad allir sættust á að fara á sama staðinn, sem er nú mjög sjaldgæft þegar hópur sem inniheldur meira en 15 manns frá mismunandi löndum og með mismunandi smekk ákveður að bregða undir sig betri fætinum. En allt heppnaðist stórkostlega, við dönsuðum af okkur óæðri endana í takt viðdúndrandi skemmtilega tónlist sem allir virtust vera að fíla. Eftir gleðina keyrði Nancy - sjá myndina hér fyrir neðan til vinstri - mig heim og allir voru alveg ótrúlega sáttir með daginn/kvöldið/nóttina.
Á laugardeginum fór undirrituð ásamt Nancy út að borða hádegismat á kaffihúsið Su Van´s, þar sem Kelly og Kurt vinir okkar vinna. Þar voru snæddar dýrindis samlokur og kaffi og eftir að aðalrétturinn var búinn kom litla snúllan hann Kurt - sem er pastry chef - með þessa gleði á borðið: Þetta gladdi hjartað (og magann) þrátt fyrir að vera degi of seint á ferðinni. It´s the thought that counts, right? Þið sem þekkið mig vitið að ég gæti ekki orðið óánægð með súkkulaði-hnetusmjörsköku.... ekki satt? nammmm
Ég vil bara þakka ykkur öllum sem senduð mér afmæliskveðjur og hugsuðuð til mín á föstudaginn og fyrirgef ykkur hinum sem gleymduð deginum.. hehehe.... (það voru nú ekki margir). Takk fyrir pakka og kort og spes þakkir til systur minnar ef hún er að lesa þetta fyrir að gefa mér fallegasta hálsmen allra tíma! Ég tók það ekki niður alla helgina! Búin að fá þvílíkt mörg hrós fyrir hvað ég á flott hálsmen:)
Knús til ykkar allra! Vildi að þið hefðuð getað verið með mér í því að halda upp á daginn.. en ég lofa að halda alveg jafn skemmtilegt partý að ári liðnu! (jafnvel fyrr!!)
20. nóvember 2006 klukkan 10:10
Gunnhildur Árnadóttir 7 athugasemdir
jæja, þá held ég að það sé kominn tími á að blogga smá um ferðina miklu til New York.. finnst ykkur það ekki? Við lögðum af stað á fimmtudegi og komum heim a mánudegi. Það gefur okkur semsagt fjóra daga í borginni. Á þessum fjórum dögum gerðum við sko alveg heilmargt! Við: Sáum skautasvellið við Rockafeller Center ufff. jaeja.. kem ekki meiru ad i bili.. verd ad haetta ad passa og fara heim.. klara thessa faerslu bradum
2 timum seinna: ARGHHHHH ég var búin að klára þessa færslu alveg... en svo DATT HUN UT!! ég er brjáluð!! Var buin að setja inn billjón myndir og skrifa alla ferðasöguna.. veit ekki ALVEG hvað gerðist.. en ég hef ENGAN VEGINN þolinmæði í að skrifa hana aftur núna.. þannig að ég skrifa meira á morgun.. ég LOFA! Sorry.. en þið þekkið mig... stundum er þolinmæðin bara af skornum skammti.. ég er farin á barinn með krökkunum;) bleeeeeeeeeeeeeeesssssssssssssssssssss.... over and out...
Okei.. Degi seinna... Núna er ég loksins búin að byggja upp þolinmæði til að byrja þessa færslu upp á nýtt. Plús það að það er brjálaður stormur úti með þrumum og eldingum sem eru háværari en nokkuð sem ég hef áður heyrt, þannig að maður bara hangir inni og gerir ekki neitt. Hvað gerðum við fleira í New York?
Við...... Fórum í Central Park Zoo þar sem voru allskyns dýr af öllum stærðum og gerðum. Það sem okkur fannst samt skemmtilegast voru sæljónin því þau gerðu allskonar trikk.. hehehe
Fórum í Trump Tower, þar sem allt er úr bleikum marmara og gulli og maður getur farið á Trump Grill, fengið sér Trump ice cream, Trump súkkulaði og keypt allskyns Trump-memorabilia. Myndir af honum hanga upp úti um allt. Það sem mér fannst fyndnast var að maður gat keypt handklæði merkt með gullnu setningunni: "You´re fired!":)
Fórum á Metropolitan listasafnið. Þar sáum við gríska list, býsantíska list, egypska og asíska list. Við sáum hluta úr egypsku grafhýsi, grískar styttur, ljósmyndasýningu, kirkjulist, og já, eiginlega bara allt sem tengist list...
Gengum 5th Avenue fram og til baka og sáum allar flottu búðirnar, Prada, Escada, Salvatore Ferragamo, Kenneth Cole, Louis Vuitton, Coach, Armani að ógleymdu sjálfu Saks 5th Avenue!!:)
Fórum á Ground Zero til að minnast þeirra sem dóu 11. september 2001. Þar var nú samt ekki mikið að sjá, enda framkvæmdir á svæðinu og girðing í kring. Á girðinguna var sett upp ljósmyndasýning með myndum tengdum 9/11. Ég í raun bjóst við því að koma þangað yrði meira "overwhelming" en held ég hafi bara ekki alveg náð þessu. Það sem stakk mest í hjartað var að einhver hafði fest blómvönd á girðinguna með korti sem á stóð "gone but not forgotten".....
Fórum á Times Square og gengum um. Þar iðar allt af lífi, ljósum, litum og látum. Ef einhverntímann þarf að skilgreina "sensory overload", þá þarf ekki annað en að fara þangað! Meira að segja McDonalds var með eitt brjálaðasta ljósaskilti sem ég hef séð og dúndrandi tónlist. Allt troðið af fólki og ekki laust við að maður hafi fengið vott af innilokunarkennd.
Heimsóttum Grand Central Station lestarstöðina. Þar hafa atriði í ófáum bíómyndum verið tekin upp, en samt var það fyrsta sem kom upp í hugann á mér þegar ég sá þetta, var þáttur í CSI: New York sem gerðist þarna... muniði þegar kallinn var að hlaupa með sýru í glasi og datt í tröppunum og sýran helltist yfir hann og hann dó en litla stelpan missti bangsann sinn og það fór sýra á hann og bangsinn varð eitt aðal sönnunargagnið... haha.. nei þið munið ábyggilega ekki neitt... það er bara ég sem er skrítin, ég veit... haha...
Fórum í Chinatown, þar sem allt iðar af, ja, kínafólki.... haha.. Þar var sko shopping paradise skal ég segja ykkur!! Hahaha... Þar sem það er ólöglegt að selja falsaðar merkjavörur þá er liðið með útsendara á aðalgötunni sem ganga um og hvísla að manni "purse purse handbag, coach, louis vuitton, special price for you, follow me".. haha.. Ég og Vivian, stelpan sem ég var með, við stóðumst ekki freistinguna og eltum einn slíkan tvær götur í burtu, upp á aðra hæð í húsi, inn á skrifstofu, inn um leynihurð á skrifstofunni og viti menn, þá komum við inn í stóran sýningarsal fullan af feik Coach, Prada, Vuitton, Kate Spade, Chloé og fleiri eðalmerkjum.. haha.. Ég keypti mér yndislega fallega Coach tösku, mjög gott feik, sem venjulega mydni kosta amk 40.000 kjell, á 3000 kr.. Ég tel það bara nokkuð vel sloppið.. hehe. En við skulum bara orða það þannig að ég kom heim frá Chinatown með NOKKRA poka...;)
Við gistum hjá Jóhönnu, frænku Liljunnar minnar. Hún býr uptown á Manhattan svo það var mjög auðvelt að komast út um allt. Við keyptum bara unlimited lestarkort og gátum farið hvert á land sem var.. innan manhattan að sjálfsögðu.. hehe... Við hittum líka Jamal, kærastann hennar Jóhönnu og Peanut, hundinn hennar, sem ég held að sé með þeim sætari sem ég hef séð.
Við fórum svo heim á mánudegi, dauðþreytt eftir helgina en það var sko alveg GEGGJAÐ gaman!
Gamanið var nú samt ekki búið þó maður væri kominn heim, því að á þriðjudaginn fór ég út með Kelly vinkonu minni og Danny kærastanum hennar, á bar sem seldi bjór fyrir 25cent eða sirka 17 krónur.. ekki slæmt það!;) Þau voru allavegana hress...:)
Svo á miðvikudagskvöldið fór ég á tónleika með Joanna Newsom sem voru alveg hreint GEGGJAÐIR. Hún spilaði nokkur gömul lög, þar á meðal The book of right-on sem er mitt uppáhalds, en svo ákvað hún að fá hljómsveitina sína með upp á svið og spila nýja diskinn sinn frá upphafi til enda. Þar sem ég hef ekki ennþá heyrt nýja diskinn þá var ég pínu vonsvikin, því yfirleitt vill maður heyra lög sem maður þekkir. En ég tek það til baka. Nýja diskinn verð ég að eignast því hann er alveg hreint MAGNAÐUR!!;) Mikil gleði og ánægja með þessa tónleika. Ég ætla að setja inn tvær myndir frá þeim, eina af Joönnu sjálfri og eina mynd sem ég tók ofan af svölunum þegar allt fólkið var að fara út. Það var alveg hellingsslatti af fólki á tónleikunum og svo var hún að fara að spila á öðrum tónleikum strax á eftir þessum.
Já, þannig að vikan mín er búin að vera mjög skemmtileg. Veit ekki hvað helgin mun bera með sér en ég er bara mjög spennt að sjá:) hehe...
Af skólanum er allt gott að frétta, ég fékk 100% á stærðfræðiprófi í lyfjaútreikningum sem ég vissi ekki einu sinni að ég ætti að taka og 92% á prófi í hand-og lyflækningahjúkrun. Bara nokkuð sátt með þetta. Svo er búið að "uppfæra" mig yfir á gjörgæsluna í verknáminu þar sem ég vinn ein með hjúkkunum þar og fæ sko að gera alveg FULLT! Þetta er ALLT annað! Mér líkar þetta alveg rosalega vel.
Þannig að.. Gunnsan er bara nokkuð sátt við lífið og tilveruna núna...
Hafið það gott um helgina, elskiði friðinn og strjúkið kviðinn.
Knús í klessu frá Chicago
10. nóvember 2006 klukkan 06:21
Gunnhildur Árnadóttir 17 athugasemdir
Jaeja.. aftur er eg i tolvuverinu.. eg get bara ekki an internetsins verid!! Thetta er rosalegt! Og eg er ad bida eftir ad thvottavelarnar (thrju stykki takk fyrir) klari ad thvo thvottinn minn svo eg geti sett i thurrkarann og att hrein fot til ad pakka nidur fyrir New York baby!! Eg er nefnilega ad fara A MORGUN!! Jeijj... en VA hvad timinn lidur hratt! Thetta er rosalegt!! Eg er ad hlada nokkrum myndum upp a facebook, fyrir ykkur sem hafid thad, thvi baedi tolvan min og myphotoalbum eru bilud enntha, og facebook leyfir mer bara ad hlada upp 5 myndum i einu herna i tolvuverinu thannig ad eg verd nett pirrud a thvi innan stundar! Thid hin verdid bara ad vera tholinmod!!;) Eg for i prof a manudaginn og fekk 9,4.... haldidi ekki bara ad nordid i mer se ad blomstra herna?;) hehe.. Svo er eg vist svo klar ad thad a ad "uppfaera" mig i verknaminu.. eg fae ad vera ein i verknami a gjorgaeslunni i stadinn fyrir ad vera med stelpunum a hand- og lyf i theirra odru verknami.. thannig ad thad er alveg frabaert:) Ja, heyrdu eg aetla ad reyna ad troda inn nokkrum myndum herna ur halloween partyinu..... Jats, tharna hafidi thad: Fra vinstri, efsta mynd: Eg, Eg og Vicky, Eg og Joe, Eg, :) Eg eg eg og aftur eg! Hopmynd: Hulk Hogan, Johnny Depp, Eg, Vicky og Frank nagranninn og svo Joe fyrir framan. Nedsta mynd: Eg og Vicky:) Linda herbergisfelagi var lika med okkur en af einhverri astaedu er hun ekki inni a neinni af thessum myndum og eg nenni ekki ad hlada inn fleirum:) hehe sorry.
Svo i lokin aetla eg ad henda inn tveimur myndum nedan ur bae sem eg tok a manudaginn thegar eg var ad passa. Thetta halloween dot aetlar alla lifandi ad drepa herna og thad er allt undir lagt! Thad var semsagt Haunted Village nidri i bae og Midnight Sircus ad syna og thad var bodid uppa pumpkin carving og svo var buid ad lita gosbrunninn i stil vid Hrekkjavokuna!:
Og svona rett i lokin aetla eg ad stela af sidunni hennar Berglindar spurningalista sem eg vil ad allir verdi bunir ad fylla ut i athugasemdunum thegar eg kiki aftur a siduna eftir ad eg kem heim fra New York New York... Ef thad verda ekki fleiri en fimm bunir ad fylla listann ut, tha kem eg ekki med ferdasogun thadan inna bloggid.. hahaha;) Hotanir... hafa alltaf virkad vel
1. Hver ert þú? 2. Erum við vinir? 3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig? 4. Ertu hrifin/nn af mér? 5. Langar þig að kyssa mig? 6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það. 7. Lýstu mér í einu orði. 8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst? 9. Lýst þér ennþá þannig á mig? 10. Hvað minnir þig á mig? 11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera? 12. Hversu vel þekkiru mig? 13. Hvenær sástu mig síðast? 14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það? 15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?
Og svara svo!!;)
Knus og kossar fra hjukkunni i Chicago! lovju oll! Gunnsa
02. nóvember 2006 klukkan 05:00
Gunnhildur Árnadóttir 12 athugasemdir